Guðmundur verður oddviti Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi

Fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri Ísa­fjarðar mun leiða lista VIð­reisnar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi í þing­kosn­ing­unum sem fara fram eftir sex mán­uði og tvo daga.

Guðmundur Gunnarsson
Guð­mundur Gunn­ars­son Mynd: Facebook-síða Guðmundar Gunnarssonar.

Guð­mundur Gunn­ars­son, fyrrum bæj­ar­stjóri Ísa­fjarð­ar­bæjar mun leiða lista Við­reisnar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Þetta var til­kynnt í mynd­bandi sem flokk­ur­inn birti á sam­fé­lags­miðlum í dag. Heild­ar­listi flokks­ins í kjör­dæm­inu liggur ekki fyrir og er upp­still­ing­ar­nefnd hans enn að störfum.

Kjarninn greindi frá því 14. des­em­ber síð­ast­lið­inn að Guð­mundur væri geng­inn í Viðreisn og stefndi að því að leiða lista flokks­ins í kjör­dæm­inu. Hann hefur ekki áður verið hluti af stjórn­mála­afli.

Í til­kynn­ingu segir Guð­mundur að hann hafi ákveðið að bjóða sig fram í Norð­vest­ur­kjör­dæmi vegna þess að hann beri sterkar taugar til heima­haga sinna og vilji vinna að því að rétta hlut svæð­is­ins. „Það býr kraftur í Norð­vest­ur­kjör­dæmi og þann kraft þarf að leysa úr læð­ingi með breyttum áherslum og ferskum vindum. Þar sem leið­ar­stefið er að almanna­hags­munir trompi sér­hags­muni.“

[adspot]Guð­mundur er með meist­ara­próf í alþjóða­við­skiptum og BA próf í fjöl­miðla­fræði. Hann starf­aði áður við fréttir og dag­skrár­gerð hjá RÚV en hefur síð­ustu ell­efu ár gegnt stjórn­un­ar­stöðum hjá 66°NORÐUR, AFS á Íslandi og nú síð­ast sem bæj­ar­stjóri Ísa­fjarð­ar­bæjar. Hann hætti í því starfi í jan­úar í fyrra eftir ágrein­ing við meiri­hluta bæj­ar­stjórnar.

Í við­tali við Mann­líf í febr­úar í fyrra sagð­ist hann hafa orðið þess mjög fljótt áskynja eftir að hafa verið ráð­inn í starfið að hann nyti ekki stuðn­ings Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem var stærri flokk­ur­inn í meiri­hlut­anum í sveit­ar­fé­lag­inu.

Viðreisn er ekki með þing­mann í Norð­vest­ur­kjör­dæmi sem stendur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár