Hanna Katrín og Þorbjörg leiða fyrir Viðreisn í Reykjavík – Varaformaðurinn ekki oddviti

Viðreisn hafn­aði fyrr­ver­andi for­manni við upp­still­ingu á lista í Reykja­vík og vara­for­maður flokks­ins verður ekki odd­viti í kom­andi kosn­ingum.

Katrín Sigríður J. Steingrímsdóttir, María Rut Kristinsdóttir, Jón Steindór Valdimarsson, Hanna Katrín Friðriksson, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, Heiða Ingimarsdóttir, Daði Már Kristófersson, Guðmundur Ragnarsson og Dagbjartur Gunnar Lúðvíksson.
Katrín Sigríður J. Stein­gríms­dóttir, María Rut Krist­ins­dóttir, Jón Steindór Valdi­mars­son, Hanna Katrín Frið­riks­son, Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir, Heiða Ingi­mars­dóttir, Daði Már Krist­ó­fers­son, Guð­mundur Ragn­ars­son og Dag­bjartur Gunnar Lúð­víks­son. Mynd: Viðreisn

Þing­menn­irnir Hanna Katrín Frið­riks­son og Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir munu leiða lista Við­reisnar í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum tveimur í kosn­ing­unum í haust. Hanna Katrín, sem er þing­flokks­for­maður Við­reisnar, mun áfram leiða í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður líkt og hún gerði 2017 en Þorbjörg Sigríður, sem tók sæti Þor­steins Víglunds­sonar á þingi þegar hann ákvað að hverfa til ann­arra starfa, tekur við af honum sem odd­viti í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður. Þor­steinn situr í neðsta sæti list­ans í ár, sem er svo­kallað heið­urs­sæti.

[links]Það þýðir að Daði Már Krist­ó­fers­son, pró­fessor í hag­fræði sem kjör­inn var vara­for­maður Við­reisnar í fyrra, mun ekki leiða lista flokks­ins í kom­andi kosn­ingum. Hann verður í öðru sæti á lista flokks­ins í Reykja­vík suður. Jón Steindór Valdi­mars­son, þing­maður Við­reisnar í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, er í 2. sæti á lista flokks­ins í Reykja­vík norður og færir sig því um kjör­dæmi. Hann var í öðru sæti, á eftir flokks­for­mann­inum Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur, í Kraganum í kosn­ing­unum 2017.

Upp­still­ing­ar­nefnd Við­reisnar bauð Benedikt Jóhann­essyni, fyrr­ver­andi for­manni flokks­ins sem sótt­ist eftir að leiða fyrir Viðreisn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, neðsta sæti á lista á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en hann afþakk­aði það boð.

]María Rut Krist­ins­dóttir, aðstoð­ar­maður for­manns Við­reisnar, er í 3. sæti list­ans í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður og Dag­bjartur Gunnar Lúð­víks­son, lög­fræð­ingur, er í því fjórða.

Katrín Sigríður J. Stein­gríms­dóttir, sál­fræði­nemi og frí­stunda­leið­bein­andi, skipar 3. sæti list­ans í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður og Guð­mundur Ragn­ars­son, fyrr­ver­andi for­maður VM, félags vél­stjóra og málm­tækni­manna, er í 4. sæti.

[adspot]Notast er við svo­kall­aða fléttu­lista á fram­boðs­listum Við­reisnar þar sem hver fram­bjóð­andi má ekki vera af sama kyni og sá sem skipar sætið á undan. Formaður upp­still­inga­nefndar var Þor­steinn Pálsson, fyrr­ver­andi for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem hefur starfað innan Við­reisnar frá stofnun og gengt þar ýmsum trún­að­ar­störfum.

Listi Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi suður:

  1. Hanna Katrín Frið­riks­son, for­maður þing­flokks Við­reisnar
  2. Daði Már Krist­ó­fers­son, pró­fessor í hag­fræði og vara­for­maður Við­reisnar
  3. María Rut Krist­ins­dóttir, aðstoð­ar­maður for­manns Við­reisnar
  4. Dag­bjartur Gunnar Lúð­víks­son, lög­fræð­ingur
  5. Heiða Ingi­mars­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Skauta­sam­bands Íslands
  6. Gunnar Björns­son, for­maður Skák­sam­bands Íslands
  7. Tinna Gunn­laugs­dóttir, fyrr­ver­andi Þjóð­leik­hús­stjóri
  8. Sverrir Kaaber, skrif­stofu­stjóri og for­maður öld­unga­ráðs Við­reisnar
  9. Eyrún Þórð­ar­dóttir, verk­efna­stjóri
  10. Árni Grétar Jóhanns­son, leik­stjóri og leið­sögu­maður
  11. Rhea Juarez, í fæð­ing­ar­or­lofi
  12. Stefán Andri Gunn­ars­son, kenn­ari
  13. Kristín Hulda Gísla­dóttir, sál­fræð­ingur á mót­töku­geð­deild
  14. Aron Eydal Sig­urð­ar­son, þjón­ustu­full­trúi
  15. Sandra Hlín Guð­munds­dóttir, náms- og starfs­ráð­gjafi
  16. Reynir Hans Reyn­is­son, sér­náms­læknir
  17. Tamar Klara Lipka Þorm­ars­dóttir, rann­sak­andi hjá skatt­rann­sókn­ar­stjóra Skatts­ins
  18. Samúel Torfi Pét­urs­son, verk­fræð­ingur
  19. Margrét Ósk Gunn­ars­dóttir, laga­nemi

20. Geir Finnsson, vara­borg­ar­full­trúi Við­reisnar og vara­for­seti LUF

21. Ásdís Rafnar, hæsta­rétt­ar­lög­maður

22. Pawel Bartoszek, for­maður skipu­lags- og sam­göngu­ráðs Reykja­víkur

Listi Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi norður:

  1. Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir, þing­maður
  2. Jón Steindór Valdi­mars­son, þing­maður
  3. Katrín Sigríður J. Stein­gríms­dóttir, sál­fræði­nemi og frí­stunda­leið­bein­andi
  4. Guð­mundur Ragn­ars­son, fyrr­ver­andi for­maður VM, félags vél­stjóra og málm­tækni­manna
  5. Marta Jóns­dóttir, lög­fræð­ingur
  6. Geir Sigurður Jónsson, for­rit­ari og frum­kvöð­ull
  7. Þórunn Sif Böðv­ars­dóttir, kenn­ari
  8. Borgþór Kjærne­sted, fram­kvæmda­stjóri
  9. Dóra Sif Tynes, lög­maður
  10. Einar Karl Frið­riks­son, efna­fræð­ingur
  11. Aðal­björg Guð­munds­dóttir, náms- og starfs­ráð­gjafi
  12. Einar Torfi Ein­ars­son Reynis, verk­fræð­ingur
  13. Emilía Björt Írisar­dóttir, stjórn­mála­fræði­nemi
  14. Kristján Ingi Svan­bergs­son, meist­ara­nemi í fjár­málum
  15. Þuríður Elín Sig­urð­ar­dóttir, leik­kona
  16. Halldór Pét­urs­son, bygg­ing­ar­verk­fræð­ingur
  17. Svanborg Sig­mars­dóttir, fram­kvæmda­stjóri
  18. Svein­björn Finnsson, sér­fræð­ingur í orku­málum
  19. Sigrún Helga Lund, stærð­fræð­ingur

20. Hákon Guð­munds­son, mark­aðs­fræð­ingur

21. Jóhanna Fjóla Ólafs­dóttir, kenn­ari og tón­list­ar­kona

22. Þor­steinn Víglunds­son, fyrr­ver­andi félags­mála­ráð­herra

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár