Tekið að hitna undir Jeff Sessions – Tímalína atburða

Verulega er nú þrýst á Jeff Sessions, nýskip­aðan dóms­mála­ráð­herra, um að segja af sér eftir að hann var stað­inn að ósann­inum um sam­skipti sín við Rússa.

Sessions svaraði spurningum blaðamanna eftir að hafa lesið yfirlýsingu sína í fjölmiðlarými dómsmálaráðuneytisins.
Sessions svar­aði spurn­ingum blaða­manna eftir að hafa lesið yfir­lýs­ingu sína í fjöl­miðla­rými dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins. Mynd: EPA

Jeff Sessions, dóms­mála­ráð­herra, er kom­inn í veru­leg vand­ræði eftir að upp­lýs­ingar komu fram um það að hann hefði í tvígang hitt sendi­herra Rússa í Banda­ríkj­unum, Sergey I. Kislyak, á fundum í fyrra. Fyrst í júlí og síðan í sept­em­ber. 

Eið­svar­inn, frammi fyrir þing­nefnd Banda­ríkja­þings, hélt hann því fram að hann hefði ekki átt í sam­skiptum við Rússa. Hann hefur nú sjálfur stað­fest að fund­irnir hefðu átt sér stað, en seg­ist ekki líta svo á að hann hafi logið að nefnd­inni. Hann hefði skilið spurn­ing­una á þann veg, að hann hafi talið rétt að segj­ast ekki hafa hitt Rússana.

Sessions hefur ákveðið að draga sig alveg frá því ef til þess kemur að dóms­mála­ráðu­neyti hans fari að rann­saka tengsl fram­boðs Donalds Trumps við Rússa. Nú þegar hefur Michael Flynn, sem gegndi stöðu aðal­ráð­gjafa Trumps á sviði öryggis- og varn­ar­mála, sagt af sér vegna tengsla sinna við Rússa. Hann greindi Micheal Pence, vara­for­seta Banda­ríkj­anna, ekki frá því að hann hefði rætt um við­skipta­þving­anir á hendur Rússum við sendi­herra Rúss­lands í Banda­ríkj­unum, Sergey I. Kislyak.

Tímalína atburðanna sem tengjast Sessions er þessi.

Hinn 28. febr­úar í fyrra var Sessions fyrsti þing­maður Repúblik­ana til að lýsa form­lega yfir stuðn­ingi við fram­boð Donalds Trumps.

Hinn 3. mars greindi Trump frá því að Sessions yrði aðal­ráð­gjafi hans í öryggis- og varn­ar­málum í fram­boð­inu.

Orðrómur um að tölvu­árásir hafi átt sér stað á Demókra­ta­flokk­inn og helstu stjórn­endur fram­boðs Hillary Clinton er stað­festur með yfir­lýs­ingu 14. júní frá Demókrötum.

Hinn 18. júlí hittir Sessions sendi­herra Rússa, Sergey I. Kislyak, á fundi, eftir fund Repúblik­ana.

Fjórum dögum síðar, 22. júlí, eru tölvu­póstar kosn­inga­stjóra Demókrata og Hillary Clinton, ásamt fleirum, birtir á vef Wikileaks.

Hinn 25. júlí lýsir banda­ríska alrík­is­lög­reglan því yfir að rann­sókn sé hafin á tölvu­árás­unum. Sama dag segir Donald Trump í beinni útsend­ingu, í ræðu. „Rússar, ef þið eruð að hlusta, ég vona að þið getið birt eitt­hvað af þessum 30 þús­und tölvu­póstum sem Hillary eyddi”.

Hinn 8. sept­em­ber hitti Sessions sendi­herr­ann aftur, að þessu sinni á skrif­stofu sinni í Washington D.C. Mánuði síðar lýsir Barack Obama, Banda­ríkja­for­seti, því fyrir að Rússar séu að skipta sér af lýð­ræð­is­legum fram­gangi kosn­inga í Banda­ríkj­unum. Donald Trump er síðan kos­inn Banda­ríkja­for­seti, 8. Nóvember.

Hinn 29. des­em­ber bregst Obama við tölvu­árásum Rússa með refsi­að­gerðum og vísar rúss­neskum erind­rekum úr landi.

Á svip­uðum tíma ræddi Michael Flynn við Kislyak í síma, og þar voru meðal ann­ars við­skipta­þving­anir gagn­vart Rússum til umfjöll­unar. Símtalið var hlerað.

Hinn 10. jan­úar á þessu ári var Sessions í þing­inu í Banda­ríkj­unum, og svar­aði spurn­ingum eið­svar­inn. Hann sagð­ist aldrei hafa verið í sam­skiptum við Rússa.

Sessions er skip­aður dóms­mála­ráð­herra 8. febr­úar.

Flynn segir af sér 13. febr­úar.

Washington Post greinir frá því 1. mars að Sessions hefði átt fund­ina með sendi­herra Rússa, þvert á það sem hann hafði áður haldið fram. Donald Trump lýsir strax yfir stuðn­ingi við Sessions og segir um norna­veiðar að ræða. Hann hafi ekk­ert rangt gert.

Þingmenn Demókrata og einnig nokkrir úr röðum Repúblik­ana þrýsta á um að allt verði upp­lýst sem teng­ist sam­skipt­unum við Rússa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár