Sýrlenskir hælisleitendur sendir aftur til Búlgaríu: „Þá drep ég mig“

Sýr­lensku hæl­is­leit­end­urnir Ahmad Aldzasem Ibrahim og Wajden S. Rmmo verða sendir til Búlgaríu á þriðju­dag. Mann­rétt­inda­sam­tökin Amnesty International hafa gagn­rýnt búl­görsk yfir­völd fyrir harð­ræði gagn­vart hæl­is­leit­endum. „Hvers vegna vill eng­inn hjálpa okkur?“

Tveir sýr­lenskir hæl­is­leit­endur, sem hafa verið hér á landi í sjö og átta mán­uði, verða sendir úr landi til Búlgaríu á þriðju­dag. Búlgörsk yfir­völd hafa verið harð­lega gagn­rýnd, meðal ann­ars af Amnesty International, fyrir slæma með­ferð á flótta­mönnum og fyrir að taka illa á hat­urs­glæpum sem fær­ast sífellt í auk­ana í land­inu. Helga Vala Helga­dóttir lög­maður hefur nú sótt um dval­ar­leyfi fyrir annan þeirra, að því er fram kemur í frétt Frétta­tím­ans í dag.  

Ahmad Aldzasem Ibrahim kom til lands­ins í júní á síð­asta ári og hefur því verið hér á landi í sjö mán­uði. Hann vinnur á veit­inga­staðnum Ali Baba og seg­ist ekki þurfa á annarri fram­færslu að halda. Það eina sem hann vilji er leyfi til að vera áfram hér á landi. „Ég borga skatta og fæ laun. Leyfið mér bara að vera hérna,“ segir hann. 

Wajden S. Rmmo kom til lands­ins í maí á síð­asta ári, en hann. „Ég veit að fólk hefur fengið hæli hér á landi eða dval­ar­leyfi sem kemur ekki frá stríðs­hrjáðum löndum. Landið okkar er í rúst. Hvers vegna vill eng­inn hjálpa okkur?“ spyr Wajden. 

Stundin ræddi við Ahmad og Wajden, með aðstoð túlks, fyrr í dag. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár