Fréttir

Þing­maður segir tjald­búð­irnar vera „þjóðar­ör­ygg­is­mál“ og vill að borgin borgi gistin­átta­skatt

Birgir Þór­ar­ins­son telur að Reykja­vík­ur­borg sé að brjóta lög með því að heim­ila mót­mæl­endum frá Palest­ínu að tjalda við þing­húsið. Hann hefur áhyggjur af því að ferða­menn og heim­il­is­lausir muni von bráðar færa sig niður á Aust­ur­völl til að sleppa við að greiða fyrir gist­ingu.
Skýring

Sam­an­tekt Suður Afríku „yfir­grips­mikil, með mjög slá­andi yfir­lýs­ingum stjórn­valda í Ísrael“

Máls­með­ferð á kæru Suður Afríku gagn­vart Ísrael um þjóð­ar­morð hefst á fimmtu­dag­inn 11. jan­úar fyrir alþjóða­dóm­stól Sam­ein­uðu þjóð­anna í Haag. Afleið­ing­arnar, ef úrskurður fellur Ísrael í óvil, gætu orðið marg­vís­legar og afdrifa­ríkar fyrir Ísrael, segir lektor við laga­deild Háskóla Íslands.
Fréttir

Lög­reglan hætt rann­sókn á meintum líf­láts­hót­unum í garð blaða­manna

Lög­reglan á Norð­ur­landi eystra hefur fellt niður rann­sókn á kæru sem tveir blaða­menn lögðu fram gegn skip­stjóra hjá Samherja. Blaða­menn­irnir líta svo á að þeim hafi verið hótað af mann­inum þegar“ hann sendi þeim póst um að hann neydd­ist til að „grípa til ann­ara ráða til þess að stoppa ykkur.“ Áður hafði mað­ur­inn ýjað að því opin­ber­lega að hann vildi nota skot­vopn gegn blaða­mönnum.
Greining

Lögbrot Svan­dísar ýta af stað póli­tískri ref­skák innan rík­is­stjórn­ar­innar

Mat­væla­ráð­herra ætlar ekki að segja af sér þrátt fyrir að hafa orðið upp­vís af því að brjóta gegn lögum. Þrýst­ingur er á að hún axli ábyrgð á sama nýstár­lega hátt og Bjarni Bene­dikts­son gerði, með því að skipta um ráð­herra­stól. Gerist það muni þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks geta rétt­lætt að verja hana gegn van­traust­s­til­lögu, sem senni­legt er að stjórn­ar­and­staðan muni leggja fram. Hlið­ar­á­hrif yrðu þau að frum­varp hennar um breyt­ingar á fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu gæti dagað uppi.

10 mín. lestur

ÚttektJarðefnaiðnaður í Ölfusi

Heidel­berg­höfn á teikni­borð­inu vestan við Þor­láks­höfn

Sveit­ar­fé­lagið Ölfus hefur lýst yfir áhuga á því að ný höfn, sem byggja þarf svo möl­un­ar­verk­smiðja Heidel­berg geti risið vestan við Þor­láks­höfn, verði fjár­mögnuð með svip­uðu fyr­ir­komu­lagi og Hval­fjarð­ar­göng, þannig að sveit­ar­fé­lagið eign­ist höfn­ina á end­anum án þess að leggja fram krónu til upp­bygg­ingar. Bæj­ar­stjór­inn Elliði Vign­is­son seg­ist vita til þess að rætt hafi verið við líf­eyr­is­sjóði um aðkomu að verk­efn­inu og Þor­steinn Víglunds­son, tals­maður Heidel­berg og for­stjóri Horn­steins, segir nálgun sveit­ar­fé­lags­ins eina af þeim sem séu til skoð­unar.

Mest lesið undanfarið ár