Fréttir

Nýkjör­inn for­maður eldri borg­ara skráði sig í félagið viku fyrr og smal­aði „úr öllum flokkum“

Hvað gerð­ist raun­veru­lega á aðal­fundi Félags eldri borg­ara í Reykja­vík og nágrenni? Gagn­rýnendur stjórn­ar­kjörs segja það hafa verið þaul­skipu­lagða hall­ar­bylt­ingu Sjálf­stæð­is­manna. Nýkjör­inn for­maður, sem er nýskráður í félagið, seg­ist vera kjós­andi Sjálf­stæð­is­flokks­ins en ekki geið­andi félagi í flokknum.
Fólkið í borginni

Alabama og Reykja­vík

April Dobbins, rit­höf­undur og kvik­mynd­ar­gerð­ar­kona, flutti til Íslands árið 2022 til að stunda nám við Háskóla Íslands eftir að hafa dreymt um það lengi að flytja hingað. Hún ólst upp á bónda­býli í amer­íska suðr­inu, í Alabama nánar til­tekið. Henni finnst Alabama og Reykja­vík ekk­ert svo ólíkir staðir ef út í það er farið, en þeir eiga það sam­eig­in­legt, að henni finnst, að allir þekki alla og því erfitt að upp­lifa ein­hvers konar nafn­leysi, svo fátt eitt sé nefnt.
FréttirRannsókn á einelti í Menntasjóði

Ásdís Halla sagði sig frá ein­elt­is­máli vegna tengsla við Lands­rétt

Ráðu­neyt­is­stjór­inn í háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu ákvað að taka ekki fyrir ein­elt­is­mál sem verið hefur til skoð­unar vegna þess að eig­in­maður hennar starfar með systur fram­kvæmda­stjóra Mennta­sjóðs náms­manna sem málið snýst um. Málið hefur verið til skoð­unar í ráðu­neyt­inu í meira en ár og snýst um meint ein­elti gegn starfs­manni Mennta­sjóðs sem látið hefur af störfum.
FréttirSamráð skipafélaga

Sam­fé­lags­legt tjón af sam­ráði skipa­fé­lag­anna metið á 62 millj­arða

Kostn­aður íslensks sam­fé­lags vegna ólög­legs sam­ráðs Eimskips og Samskipa er met­inn 62 millj­arðar króna í nýrri grein­ingu Analytica. Stærstur hlut­inn er sagður hafa lent á neyt­endum vegna hærri kostn­aðar á inn­fluttum vörum og þeim sem skulda verð­tryggð lán. „Dýrkeypt og hrika­leg aðför að neyt­endum,“ segir for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna.
Stjórnmál

Segir tauga­veiklun hafa gripið um sig í Sjálf­stæð­is­flokknum í kjöl­far ummæla Kristrúnar

Jóhann Páll Jóhanns­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sagði að tauga­veiklun hafi gripið um sig í Sjálf­stæð­is­flokknum eftir að Kristrún Frosta­dóttir steig inn í umræð­una um útlend­inga­mál. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi í kjöl­farið ákveðið að kenna Sam­fylk­ing­unni um allt sem hefur mis­farist í mál­efnum útlend­inga. Þingmenn Við­reisnar og Pírata hörm­uðu í ræðum sínum þær breyt­ingar sem hafa átt sér stað á við­horfi til flótta­fólks.

Mest lesið undanfarið ár