Viðtal

Ferða­sagan: Frá sprengjuregni á Gaza í hljóð­látan Hafn­ar­fjörð

Fyrir örfáum vikum bjuggu Abeer Herzallah og dætur hennar þrjár í tjaldi í Rafah. Hávaðinn í sprengjum var orð­inn alvana­legur og þeim fannst dauð­inn nálg­ast. Svo breytt­ist allt við skila­boðin: „Þið eruð komnar með leyfi til að fara héðan.“ Það var kom­inn tími á ferða­lag til Íslands, til eig­in­manns­ins sem Abeer hafði ekki hitt í tvö ár.
Viðskipti

Alvotech fékk loks­ins mark­aðs­leyfi fyrir hlið­stæðu við Humira í Banda­ríkj­unum

Næstum ári eftir að Alvotech ætl­aði að vera búið að fá mark­aðs­leyfi fyrir hlið­stæðu við eitt mest selda lyf Banda­ríkj­anna er leyfið í höfn. Mark­aðsvirði Alvotech hefur rokið upp síð­ustu miss­eri þrátt fyrir að áform um hagnað á síð­ari hluta síð­asta árs hafi ekki gengið eftir. Þess í stað varð gríð­ar­legt tap.
Viðtal

Fólkið sem hefur ekki fengið fjöl­skyldu­sam­ein­ingu bíður í von og ótta

Ahmed Omran er sextán ára drengur frá Palest­ínu sem hefur ekki getað sótt um fjöl­skyldu­sam­ein­ingu því sjálfur fékk hann ekki vernd fyrr en í gær. Faðir hans er sótt­varn­ar­læknir á Gaza. Um 200 umsóknir um dval­ar­leyfi fyrir palest­ínska rík­is­borg­ara á grund­velli fjöl­skyldu­sam­ein­ingar eru óaf­greiddar. Fatma Albayyouk bíður eftir svari fyrir for­eldra sína og bræður, en aðeins faðir hennar upp­fyllir skil­yrðin.

9 mín. lestur

Fréttir

Aðstand­endur íbúa á Sóltúni beðnir um að þrífa: „Þarna blöskr­aði mér gjör­sam­lega“

Stjórn­endur hjúkr­un­ar­heim­il­is­ins Sóltúns báðu aðstand­endur íbúa að hjálpa til við þrif með eigin tuskum og hreinsi­efnum árið 2022. Það var eftir að eig­end­urnir seldu fast­eign hjúkr­un­ar­fé­lags­ins fyrir 3,8 millj­arða, leigðu hús­næðið af kaup­and­anum, greiddu sér 2 millj­arða út úr félag­inu og fóru svo í nið­ur­skurð á þjón­ust­unni. Aðstand­endur og starfs­fólk lýsa reynslu sinni af starf­sem­inni og þjón­ustu við gamla fólkið.

19 mín. lestur

Skýring

Stjórn­ar­kjör nálg­ast í Festi – „Við erum mót­fallin því að Þórður Már taki aftur sæti“

Stjórn stærsta hlut­hafans í Festi, Líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna rík­is­ins, lýsir yfir von­brigðum með störf til­nefn­inga­nefndar félags­ins. Nefndin leggur til að Þórður Már Jóhann­es­son verði kjör­inn í stjórn á ný. Líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Brú leggst gegn því að hann taki aftur sæti í stjórn Festi. Þórður Már sagði sig úr stjórn­inni fyrir tveimur árum eftir að hann var sak­aður um kyn­ferð­is­brot gegn ungri konu.

Mest lesið undanfarið ár