Greining

Skuldir á hvern íbúa í Garðabæ og Hafn­ar­firði nálg­ast tvær millj­ónir króna

Mikið er skegg­rætt um fjár­hags­stöðu sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þegar horft er á skulda­stöðu þess hluta rekst­urs þeirra sem er fjár­magn­aður með skatt­tekjum er staðan skást í Kópavogi og Reykja­vík en versnar hrað­ast í Garðabæ og á Sel­tjarn­ar­nesi, þar sem veltufé frá rekstri var nei­kvætt í fyrra. Hafn­ar­fjörður er eina sveit­ar­fé­lagið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem var með veltu­fjár­hlut­fall, sem seg­ir til um getu sveit­ar­fé­lags til að borga skuld­ir sín­ar, umfram það sem æski­legt er. Heim­ildin rýndi í árs­reikn­inga sveit­ar­fé­lag­anna.

8 mín. lestur

FréttirFatlað fólk beitt nauðung

„Óvið­un­andi“ að bíða í þrjú ár – Var læstur inni árum saman

Þriggja ára bið eftir ráð­gjöf frá sér­fræði­teymi um aðgerðir til að draga úr beit­ingu nauð­ungar í þjón­ustu við fatlað fólk er óvið­un­andi að mati félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neyt­is­ins. Það var hins vegar sá tími sem Akur­eyr­ar­bær beið eftir ráð­gjöf­inni í máli Sveins Bjarna­sonar sem var læstur inni í íbúð á vegum bæj­ar­ins. Ráðu­neytið ítrekar þó ábyrgð þeirra sem beita slíkri nauð­ung.
GreiningÁrásir á Gaza

Menning mót­mæla í Banda­ríkj­unum gleymd og grafin

Nútíma­saga Banda­ríkj­anna er mótuð af kröft­ugum mót­mæla­hreyf­ingum. Mótmæli gegn Víetnam­stríð­inu og fyrir rétt­inda­bar­áttu þeldökkra og ann­arra minni­hluta­hópa höfðu áhrif á stjórn­mála­vit­und heilla kyn­slóða. Mótmæli háskóla­nema þessa dag­ana gegn fjár­hags­legum tengslum háskóla sinna við Ísrael og gegn stríð­inu á Gaza mæta þó harka­legri vald­beit­ingu yfir­valda. Sögulegi bak­sýn­is­speg­ill­inn dæmir slíkar aðgerðir hart.
Fréttir

Læknir segir lífi Blessing ógnað með brott­vísun

Læknir á Land­spít­ala segir að það sé ófor­svar­an­legt með öllu út frá lækn­is­fræði­legu sjón­ar­miði að Blessing Newton frá Nígeríu verði vísað úr landi á morgun. Hún sé með sex æxli í legi og lífs­nauð­syn­legt að hún hafi greiðan aðgang að bráða­þjón­ustu. Blessing er nú í gæslu­varð­haldi á Hólms­heiði að sögn lög­manns hennar. Hann segir lækn­is­vott­orðið þess eðlis að ekki sé annað hægt en að fresta fram­kvæmd brott­vís­unar.
ViðtalHlaupablaðið 2024

Brosir gegnum sárin

Andrea Kol­beins­dóttir, marg­faldur Íslands­meist­ari í hlaupum, gerir hlé á lækn­is­fræði til að reyna að verða atvinnu­hlaup­ari. Hún deilir lær­dómi sínum eftir hindr­anir og sigra síð­ustu ára. Fjöl­skyldu­með­limir hafa áhyggjur af hlaup­unum, en sjálf ætlar hún að læra meira á manns­lík­amann til að bæta sig og hjálpa öðrum. Hlaupin snú­ast um sigur hug­ans og stundum brosir hún til að plata heil­ann.

11 mín. lestur

FréttirPressa

Vill að NATO greiði fyrir nýjan flug­völl

Eiríkur Ingi Jóhanns­son for­seta­fram­bjóð­andi telur að aðild Íslands að Norður-Atl­ants­hafs­banda­lag­inu (NATO), sem sam­þykkt var á Alþingi árið 1949, hefði átt að vera sett í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. Í nýjasta þætti Pressu sagði Eiríkur að Ísland ætti ekki að leggja til fjár­muni í varn­ar­banda­lagið. Þvert á móti ætti NATO, að hans mati, að fjár­magna upp­bygg­ingu á mik­il­vægum innviðum hér á landi.

Mest lesið undanfarið ár