Fréttir

Elkem brennir trják­urli Running Tide - Eignir á bruna­út­sölu

Fjall af trják­urli sem Running Tide skilur eftir sig á Grund­ar­tanga verður brennt til að knýja málm­blendi Elkem. Kurlið auk 300 tonna af kalk­steins­dufti í sekkjum og fær­an­leg steypu­stöð voru aug­lýst til sölu um helg­ina eftir að Running Tide hætti skyndi­lega allri starf­semi hér á landi og í Banda­ríkj­unum. Fyr­ir­tækið skol­aði 20 þús­und tonnum af trják­urli í sjó­inn í fyrra og sagð­ist binda kolefni. „Bull“ og „fár­an­leiki“ til þess gerður að græða pen­inga, sögðu vís­inda­menn.
Fréttir

Running Tide og ráð­herr­arnir - Koma af fjöllum um eft­ir­lits­leysið

Blaða­menn Heim­ild­ar­innar tóku við­töl við þrjá ráð­herra um aðkomu þeirra að því að Running Tide fékk leyfi stjórn­valda til starf­semi á Íslandi. Umhverf­is­ráð­herra sagði ein­ungis hafa haft full­yrð­ingar for­svars­manna fyr­ir­tæk­is­ins fyrir því að starf­semin væri „stærsta ein­staka kolefn­is­föng­un­ar­verk­efni í heimi“. Utan­rík­is­ráð­herra seg­ist ekki geta svarað því hvort hún hafi skapað for­dæmi sem leyfi nú að afgangstimbri verði hent í sjó­inn í stórum stíl.
Viðtal

Tví­bura­systur óléttar sam­tímis: „Þetta er draum­ur­inn“

Tvíburar, sem lík­lega eru ein­eggja, gengu sam­tals í gegnum þrjú fóst­ur­lát á innan við ári og voru um tíma óvissar um að þeim tæk­ist nokkurn tím­ann að eign­ast börn. En nú hefur birt til og þær eiga von á börnum með tæp­lega tveggja mán­aða milli­bili. Gen barn­anna verða lík­lega eins lík og hálf­systk­ina vegna mik­illa lík­inda með genum mæðr­anna.
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Flækjusagan

Hvers vegna stöðv­uð­ust frið­ar­við­ræður Rússa og Úkra­ínu­manna?

Fyrstu vik­urnar eftir inn­rás Rússa í Úkraínu 24. febr­úar 2022 áttu samn­inga­menn ríkj­anna við­ræður um frið­ar­samn­inga sem virt­ust á tíma­bili lík­legar til að skila árangri. Þær fóru þó út um þúfur að lokum. Banda­ríska blaðið The New York Times hefur rann­sakað ástæður þess og hér er fjallað um nið­ur­stöður blaðs­ins.

8 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár