Running Tide og ráðherrarnir - Koma af fjöllum um eftirlitsleysið

Blaða­menn Heim­ild­ar­innar tóku við­töl við þrjá ráð­herra um aðkomu þeirra að því að Running Tide fékk leyfi stjórn­valda til starf­semi á Íslandi. Umhverf­is­ráð­herra sagði ein­ungis hafa haft full­yrð­ingar for­svars­manna fyr­ir­tæk­is­ins fyrir því að starf­semin væri „stærsta ein­staka kolefn­is­föng­un­ar­verk­efni í heimi“. Utan­rík­is­ráð­herra seg­ist ekki geta svarað því hvort hún hafi skapað for­dæmi sem leyfi nú að afgangstimbri verði hent í sjó­inn í stórum stíl.

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra, hélt því fram í fjöl­miðlum og á Alþingi að Running Tide væri stærsta kolefn­is­föng­un­ar­verk­efni í heim­inum. Í við­tali við Heim­ild­ina seg­ist hann hafa byggt full­yrð­ing­una um stærð og gerð verk­efn­is­ins frá fyr­ir­tæk­inu sjálfu.

„Bara þær upp­lýs­ingar sem ég fékk“Guð­laugur Þ Þórð­ar­son umhverfis- orku- og lofts­lags­ráð­herra ræddi við blaða­menn Heim­ild­ar­innar um ummæli sín um meint afrek fyr­ir­tæk­is­ins Running Tide.Heim­ildin / Davíð Þór

Þegar þú talar um stærsta kolefn­is­föng­un­ar­verk­efni, hvaða kolefni eru þeir að fanga?

„Eins og ég sagði, þetta eru bara þær upp­lýs­ingar sem ég fékk. Mitt verk­efni er þetta og eitt verk­efni er þetta, að setja fram í eins fáum orðum og ég get, verk­efni sem við erum að kljást við. Og jafn­vel þó að þetta við­tal …

Kjósa
108
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sjá meira

Sökktu kurli og seldu syndaaflausn
RannsóknRunning Tide

Sökktu kurli og seldu synda­af­lausn

„Ýttu á takk­ann og bjarg­aðu heim­in­um,“ skrif­ar vís­inda­mað­ur af kald­hæðni er hann bend­ir um­hverf­is­ráðu­neyt­inu á var­úð­ar­orð ut­an úr heimi um að­ferð­ir sem fyr­ir­tæk­ið Runn­ing Tide fékk leyfi stjórn­valda til að prófa í þágu lofts­lags í Ís­lands­höf­um. Að­gerð­irn­ar umbreytt­ust í allt ann­að en lagt var upp með. Þær voru án alls eft­ir­lits og gerðu svo þeg­ar upp var stað­ið lít­ið ef nokk­urt gagn. „Ísland er fyrsta landið í heim­inum til að búa til kolefn­is­ein­ingar með kolefn­is­bind­ingu í hafi,“ sagði fram­kvæmda­stjór­inn.

Athugasemdir (9)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÞTÞ
    Þóroddur Tryggvi Þórhallsson skrifaði
    Hér hafa "einhverjir" peningar runnið í "einhverja" vasa.
    0
  • Julius Valsson skrifaði
    Ráðherrarnir hefðu reyndar getað spurt börn á grunnskólaaldri: "Ef þú dembir 19 þúsund tonnum af kanadísku viðarkurli í hafið við Ísland: a) hefur það áhrif á magn CO2 í andrúmsloftinu, b) hefur það áhrif á hitastig jarðar?
    4
  • GGJ
    Guðl. Gauti Jónsson skrifaði
    Hér eru systkinin frá Bakka lifandi komin. Bræðurnir frá Bakka ávörpuðu hver annan með öllum nöfnunum Gísli, Eiríkur og Helgi því þeir vissu ekki hver hét hvað né heldur hver átti að rétta karli föður þeirra kútinn. Þess vegna hrökk hann upp af segir sagan.
    7
  • Grétar Reynisson skrifaði
    🎼 Ekki benda á mig, segir ráðherrann
    Þennan dag var ég flytja milli stóla 🃏
    6
  • JL
    Jón Logi skrifaði
    Ugluspeglar hafa verið, eru og verða alltaf til. Þetta leikrit þeirra segir ansi mikið til um gæði íslenskrar stjórnsýslu. Fjórir ráðherrar og ráðuneyti höfð að ginningarfíflum, að því er virðist fyrirhafnarlaust.
    6
  • SB
    Steinar Beck skrifaði
    Hvers eiga Íslendingar að gjalda að hafa svona ráðherra Gerðum við eitthvað af okkur sem þjóð
    4
    • Þóra Karls skrifaði
      Já, - því miður virðist of stór hluti þjóðarinnar ekki hafa ígrundað val sitt á þjóðarleiðtogunum nægilega vel og öll höfum við þurft/þurfum við að taka afleiðingunum af því.
      Vonandi læra kjósendur af biturri reynslu og íhugi valkostina betur í næstu kosningum - og raunar alltaf þegar tækifæri gefast til.
      Ég vil trúa því að á Íslandi sé hægt að finna 63 trausts verðar manneskjur til setu á Alþingi. Ábyrgt fólk, laust við spillingu og græðgi. Heiðarlegt fólk sem stendur við orð sín. Fólk sem setur hagsmuni heildarinnar ofar sínum eigin og er vant að virðingu sinni. - Reynum að finna þetta fólk.
      2
  • K Hulda Guðmundsdóttir skrifaði
    Það er aumkunarvert að fara yfir viðbrögð ráðherranna! Enginn þeirra sýnir minnsta siðferðisvott gagnvart augljósum afglöpum sínum. Er þeim treystandi í öðrum leyfisveitingum til ævintýramanna sem notfæra sé trúgirni þeirra til að komast yfir íslenska náttúru?
    13
  • Hvenær þurfa ráðherrar að fara að bera ÁBYRGÐ á verkum sínum? Hversu lengi lætur íslenska þjóðin að borga fólki fyrir að gera ekkert?
    19
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Running Tide

Stór göt í íslenskum lögum er kemur að kolefnisbindingu
ViðtalRunning Tide

Stór göt í íslenskum lögum er kemur að kolefn­is­bind­ingu

Úrskurður Bjarna Bendikts­sonar um að aðgerðir Running Tide væru ekki varp í hafið, öfugt við nið­ur­stöðu Umhverf­is­stofn­unar, skap­aði að mati Snjó­laugar Árna­dóttur, dós­ents við laga­deild HR, ákveð­inn laga­legan óskýr­leika sem rétt væri að greiða úr. Fyr­ir­tækið ætl­aði að fleyta flot­hylkjum sem á myndu vaxa stór­þör­ungar en end­aði á því að fleyja 19 þús­und tonnum af kanadísku trják­urli í hafið og segj­ast með því hafa bundið 25 þús­und tonn af CO2.
Running Tide hafi hunsað og falið óhagstæð álit
FréttirRunning Tide

Running Tide hafi hunsað og falið óhag­stæð álit

Banda­rískur laga­pró­fessor sem sér­hæfir sig í lög­gjöf vegna kolefn­is­förg­unar, og sat í svoköll­uðu vís­inda­ráði Running Tide, segir fyr­ir­tækið hafa stungið áliti hans undir stól og síðan lagt ráðið niður. Fyr­ir­tækið hafi með óábyrgri fram­göngu sinni orðið til þess að nú standi til að end­ur­skoða alþjóða­sam­ing um verndun hafs­ins. Segir fyr­ir­tækið aldrei hafa fengið leyfi eins og hér á landi, án ítar­legri skoð­unar og strangs eft­ir­lits.
Áslaug Arna segir sérkennilegt að ekki hafi verið fylgst með starfsemi Running Tide
FréttirRunning Tide

Áslaug Arna segir sér­kenni­legt að ekki hafi verið fylgst með starf­semi Running Tide

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra var fyrsti ráð­herr­ann sem veitti erind­rekum Running Tide áheyrn eftir að fyr­ir­tækið hóf að kanna mögu­leika þess að gera rann­sóknir hér á landi. Eftir kynn­ingu á áformum fyr­ir­tæk­is­ins miðl­aði hún erindi fyr­ir­tæk­is­ins til sam­ráð­herra sinna. Áslaug seg­ist hafa fylgst lítið með fram­vindu rann­sókna Running Tide eftir að hafa skrifað undir vilja­yf­ir­lýs­ingu fyr­ir­tæk­inu til stuðn­ings ásamt fjórum öðrum ráð­herrum.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár