Greining

Logos fékk 30 millj­ónir frá Banka­sýsl­unni eftir að ákveðið var að leggja hana niður

Síðan að til­kynnt var að leggja ætti nið­ur Banka­sýslu rík­is­ins og fram að síð­ustu ára­mót­um þá keypti stofn­un­in þjón­ustu fyr­ir 57,4 millj­ón­ir króna. Fyrr á þessu ári kom fram að hún gæti ekki svarað því nema að hluta af hverjum hún keypti þessa þjón­ustu. Nú hafa borist svör um að Logos hafi fengið stærstan hluta en Banka­sýslan getur enn ekki gert grein fyrir allri upp­hæð­inni.
Fréttir

Kaup­máttur eykst lít­il­lega eftir langt sam­drátt­ar­skeið

Kaup­máttur ráð­stöf­un­ar­tekna á mann jókst lít­il­lega á fyrsta árs­fjórð­ungi þessa árs, eða um 0,1 pró­sent. Á síð­ustu þremur árs­fjórð­ungum í fyrra hafði kaup­máttur dreg­ist saman. Vaxta­gjöld heim­il­anna halda áfram að vega þungt í heim­il­is­bók­haldi lands­manna. Á fyrsta árs­fjórð­ungi greiddu heim­ili lands­ins sam­an­lagt um 35 millj­arða króna í vaxta­gjöld.
FréttirSameining VÍS og Fossa

Birta um kaup VÍS á Fossum: „Kannski verið hægt að semja betur við þá“

Kaup Vátrygg­inga­fé­lags Íslands á Fossum í fyrra voru umdeild og lögð­ust þrír líf­eyr­is­sjóðir í hlut­hafa­hópnum gegn þeim. Árs­reikn­ingur Fossa fyrir árið 2023 sýnir félag í rekstr­ar­vanda. Ólafur Sig­urðs­son hjá Birtu segir að árs­reikn­ing­ur­inn sýni að mögu­lega hefði hægt að semja betur við Fossa en að of snemmt sé að dæma við­skiptin sem mis­tök.
Fréttir

Ráð­herrar væng­stýfðu Umhverf­is­stofnun

Ítarleg rann­sókn Heim­ild­ar­innar á starf­semi Running Tide sýndi að í aðdrag­anda leyf­is­veit­ingar hafi ráð­herrar tekið stöðu með fyr­ir­tæk­inu gegn und­ir­stofn­unum sínum sem skil­greindu áform Running Tide sem kast í hafið. Umhverf­is­stofnun hafði ekk­ert eft­ir­lit með þeim 15 leið­öngrum sem fyr­ir­tækið stóð að, þar sem um 19 þús­und tonnum af við­arkurli var skolað í sjó­inn.

Mest lesið undanfarið ár