Tvíburasystur óléttar samtímis: „Þetta er draumurinn“

Tvíburar, sem lík­lega eru ein­eggja, gengu sam­tals í gegnum þrjú fóst­ur­lát á innan við ári og voru um tíma óvissar um að þeim tæk­ist nokkurn tím­ann að eign­ast börn. En nú hefur birt til og þær eiga von á börnum með tæp­lega tveggja mán­aða milli­bili. Gen barn­anna verða lík­lega eins lík og hálf­systk­ina vegna mik­illa lík­inda með genum mæðr­anna.

Tvíburasystur óléttar samtímis: „Þetta er draumurinn“
Sam­rýmdar Syst­urnar eiga ekki bara genin sam­eig­in­leg heldur líka nán­ast öll áhuga­málin. Nú munu þær eign­ast börn sem verða á sama aldri. Mynd: Golli

Þegar Sólrún Svava Skúla­dóttir komst að því að hún hefði misst fóstur á tólftu viku með­göngu í ágúst í fyrra var það bæði áfall fyrir hana og tví­bura­systur hennar, Sigríði Lilju. Þetta var þriðja fóst­ur­látið sem tví­burarnir, sem lík­lega eru ein­eggja, lentu í á innan við ári. 

„Getum við þá bara ekki orðið óléttar?“ hugs­aði Sigríður Lilja, sem oft­ast er kölluð Sigga, með sér. Syst­urnar voru orðnar 35 ára gamlar en rúmu hálfu ári áður hafði Sigga misst fóstur og svo Sólrún stuttu síðar einnig. Þær deila mjög svip­uðum genum, vinna báðar sem sam­göngu­verk­fræð­ingar, stunda báðar crossfit og deila flestum áhuga­málum svo þær fóru að velta því fyrir sér hvort þær ættu líka sam­eig­in­legt að geta ekki gengið með barn. 

Áfallið í ágúst­mán­uði var mikið. Sólrún, sem er oft­ast kölluð Sóla, hafði fengið frétt­irnar í 12 vikna sónar: Það er eng­inn hjart­sláttur. Hjartað hafði lík­lega ekki slegið síð­ustu …

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár