Lögreglustjórinn vísaði til „listans“ í tölvupósti til ráðherra en segir núna að hann sé ekki til
Afhjúpun

Lög­reglu­stjór­inn vís­aði til „list­ans“ í tölvu­pósti til ráð­herra en segir núna að hann sé ekki til

Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir lög­reglu­stjóri vildi koma til­teknum atriðum á fram­færi við Ólöfu Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra. Hún minnt­ist á lista með und­ir­skriftum lög­reglu­manna sem sagðir voru van­treysta til­teknum lög­reglu­full­trúa. Nú full­yrðir hún við lög­mann manns­ins að þessi listi sé ekki til.
Róttækir veganar hefja virka baráttu gegn dýraneyslu
AfhjúpunMatvælaframleiðsla

Róttækir veg­anar hefja virka bar­áttu gegn dýra­neyslu

Hópur fólks kom saman á Selfossi og hafði afskipti af bíl sem flutti svín til slátr­unar á dög­unum. Um var að ræða nýjan bar­áttu­hóp rót­tækra veg­ana. Bragi Páll Sig­urð­ar­son kynnti sér hóp­inn og komst að því að fólkið hefur mætt harðri and­stöðu og verið jað­ar­sett í fjöl­skyldum sínum vegna boð­skapar síns. Og bar­áttan er rétt að byrja.
Panamaskjölin: Notaði börnin sín í skattaskjóli
AfhjúpunPanamaskjölin

Panama­skjölin: Notaði börnin sín í skatta­skjóli

Sigurður Bollason fjár­festir skuld­batt þrjú börn sín sem lög­ráða­maður þeirra í við­skiptum félaga í skatta­skjólum. Fjögurra og sex ára gömul börn eru skráðir eig­endur skúffu­fé­laga. Sigurður og við­skipta­fé­lagi hans, Magnús Ármann, eru næst umsvifa­mestir í Panama­skjöl­unum á eftir Björg­ólfs­feðgum. Arð­greiðslur frá félögum hjá Mossack Fonseca nema á sjötta millj­arð króna. Millj­arðar voru afskrif­aðir hjá þeim báðum eftir hrun en Panama­skjölin sýna miklar eignir þrátt fyrir það.
Flett ofan af Björgólfsfeðgum: Reikningur í skattaskjóli og bankahólf opnuð í hruninu
AfhjúpunPanamaskjölin

Flett ofan af Björg­ólfs­feðgum: Reikn­ingur í skatta­skjóli og banka­hólf opnuð í hrun­inu

Gögn frá lög­manns­stof­unni Mossack Fonseca varpa ljósi á ótrú­lega umfangs­mikil við­skipti feðganna Björg­ólfs Guð­munds­sonar og Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar í skatta­skjólum fyrir og eftir hrunið 2008. Feðgarnir tengdir meira en 50 félögum. Dóttir Björg­ólfs Guð­munds­sonar opn­aði banka­reikn­ing og banka­hólf í Sviss og neitar að segja af hverju. Óþekkt lán­veit­ing upp á 3,6 millj­arða til Tortóla­fé­lags. Félag sem Björgólfur eldri stýrði fékk millj­arð í lán sem aldrei fékkst greitt til baka. Nær öll fyr­ir­tæki Björg­ólfs Thors eru beint eða óbeint í skatta­skjóli.
Panama-skjölin: Milljarðaslóð Jóns Ásgeirs og Ingibjargar rakin í skattaskjól
Afhjúpun

Panama-skjölin: Millj­arða­slóð Jóns Ásgeirs og Ingi­bjargar rakin í skatta­skjól

Panama-skjölin sýna að Jón Ásgeir Jóhann­es­son á og teng­ist miklum eignum í skatta­skjólum þrátt fyrir að hann hafi neitað því í gegnum árin. Þau sýna umfangs­mikil við­skipti Ingi­bjargar Pálma­dóttur, fjár­festis og aðal­eig­anda fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­is­ins 365, og Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar í félögum í skatta­skjólum heims­ins. Ingi­björg er skráður eig­andi félags­ins Guru Invest í Panama sem borg­aði upp skuldir upp á 2,4 millj­arða við Glitni og Jón Ásgeir er eig­andi Jovita Inc. í Panama meðal ann­ars.
Víðtæk hagsmunatengsl formanna stjórnarflokkanna
Afhjúpun

Víðtæk hags­muna­tengsl for­manna stjórn­ar­flokk­anna

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og Bjarni Bene­dikts­son tengj­ast skatta­skjólum og lág­skatta­svæðum bæði með beinum hætti og óbeinum. Gunn­laugur Sig­munds­son faðir Sig­mundar nýtti sér Tortóla­fé­lög í gegnum Lúx­em­borg til að taka út 354 millj­óna króna arð eftir hrun. Mik­il­væg­asta fjár­fest­ing­ar­fé­lag föð­ur­bróður Bjarna, Einars Sveins­sonar, var flutt frá Kýpur til Lúx­em­borgar með rúm­lega 800 millj­óna króna eignum. Hversu mörg önnur fyr­ir­tæki í skatta­skjólum og á lág­skatta­svæðum tengj­ast þessum for­mönnum Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks?

Mest lesið undanfarið ár