Viðtal

Leik­stjóri árs­ins komst ekki inn í kvik­mynda­skóla

Fyrir tíu árum dreymdi Guðmund Arnar Guð­munds­son draum um lát­inn vin sinn og út frá honum spratt hug­myndin að kvik­mynd­inni Hjarta­steini. Leiðin upp á svið Eddu-hátíð­ar­innar, þar sem myndin hlaut alls níu verð­laun, var hins vegar löng. Hann gekk á milli fram­leið­enda sem höfðu ekki áhuga á að láta hann leik­stýra mynd­inni, reyndi árang­urs­laust að kom­ast inn í kvik­mynda­skóla og gerði stutt­myndir sem hann stakk ofan í skúffu. Guð­mundur ruddi burt öllum hindr­unum, missti aldrei sjónar á mark­mið­inu og stóð að end­ingu uppi sem sig­ur­veg­ari.

17 mín. lestur

Viðtal

„Pabbi var nas­isti“

Í 42 ár starf­aði Styrmir Gunn­ars­son á Morg­un­blað­inu, þar af 36 sem rit­stjóri. Í gegnum einn öfl­ug­asta fjöl­miðil lands­ins hafði hann ekki aðeins mót­andi áhrif á stjórn­mál með tengslum sínum við vald­hafa, en einnig mót­uðu skrif hans skoð­anir lands­manna í ára­tugi. Í við­tali við Stundina ræðir Styrmir hug­mynda­fræði­legan bak­grunn sinn, mis­skipt­ingu auðs á Íslandi og áhrifin sem and­leg veik­indi kon­unnar hans höfðu á fjöl­skyld­una.

17 mín. lestur

Viðtal

Skipu­lagði dauða sinn og dætr­anna

Elma Karen sökk djúpt niður í þung­lyndi þegar hún varð ólétt að sínu öðru barni, þegar það eldra var aðeins sex mán­aða. Hún trúði því sjálf að hún væri að gera það besta fyrir alla með því að svipta sig lífi og taka dóttur sína og ófætt barn með sér. Hún varð fyrst hrædd við eigin hugs­anir þegar hún var komin með áætlun um hvenær og hvernig hún færi að því. Þá gekk hún sjálf inn á bráða­mót­töku geð­deildar.

8 mín. lestur

Viðtal

Íslenskur liðs­for­ingi í flug­rekstri í Litháen

Garðar Forberg ólst upp í Lúx­em­borg, stund­aði mennta­skóla­nám á Íslandi en flutti svo til Þýska­lands þar sem hann lauk liðs­for­ingja­námi. Síðan hefur hann unnið fyrir íslensku frið­ar­gæsl­una, meðal ann­ars í Kosóvó og Afganistan, en und­an­farin ár hefur hann rekið flugleigu í Litháen. Fyr­ir­tækið sem hann rekur á fjórtán þotur sem það leigir út og var að stofna annað félag í Dóminíska lýð­veld­inu.

12 mín. lestur

Viðtal

Skapar af ótta við dauð­ann

Ragnar Bragason ólst upp í litlu þorpi úti á landi, þar sem hann upp­lifði sig utan­veltu og öðru­vísi, eins og hann ætti ekki heima þar. Ímynd­un­ar­aflið var nán­ast tak­marka­laust og um tíma lædd­ist hann út á nótt­unni þar sem hann beið þess að verða sóttur af sínu fólki. Þegar þorpið varð síðan fyrir áfalli vann hann úr því með því að skrifa kvik­mynda­hand­rit um dreng sem gat bjargað því. Sorg­ar­við­brögðin urðu einnig inn­blást­ur­inn að per­sónu­leg­ustu sögu hans til þessa, Málmhaus, sem fjallar í raun um hann sjálfan.

25 mín. lestur

Viðtal

Ísland er ekki sjálf­bært þegar kemur að fjár­mögnun vís­inda

Unnur Anna Valdi­mars­dóttir pró­fessor land­aði nýverið 240 millj­óna króna styrk sem gerir henni kleift að leggja upp í umfangs­mikla leit að áfallastreitu­gen­inu. Þessi kraft­mikla kona er ekki bara vís­inda­maður með brjál­aðar hug­myndir heldur líka móðir fim­leika­stelpu, eig­in­kona einnar af fót­bolta­hetjum Íslend­inga, búkona og sveita­stúlka á sumrum, sem hefur varið stórum hluta lífs­ins við nám og vís­inda­störf í útlöndum en er smátt og smátt að skjóta rótum í vest­urbæ Reykja­víkur.
Viðtal

Stelast til að halda ekki jól

Átta ár eru liðin frá því að Cardew-fjöl­skyldan tók ákvörðun um að hætta að halda jól og snúa baki við flestu því umstangi sem þeim fylgja. Lilja, Belinda, Duncan og Harriet voru börn þegar ákvörð­unin var tekin en eru ung­lingar í dag. Þau sakna ekki jól­anna, þó þau hafi mis­jafnar skoð­anir á því hvort þau ætli að halda jólin hátíð­leg þegar þau eign­ast sína eigin fjöl­skyldu.

9 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár