Viðtal

Töfra­mað­ur­inn Sigurður Pálsson

Fáar per­sónur hafa haft eins mót­andi áhrif á íslenskar bók­menntir síð­ustu ára­tugi og Sigurður Pálsson. Þar spilar inn í fleira en bók­mennta­verkin, því hann hefur einnig tekið að sér að kenna og leið­beina fjölda fólks í skap­andi skrifum við Háskóla Íslands. Sigurður ræddi við blaða­mann um nýju ljóða­bæk­urnar hans þrjár, rit­list­ina og bar­áttu hans við ólækn­andi og ill­vígan sjúk­dóm.

17 mín. lestur

Viðtal

End­ur­skil­grein­ing lífs­ins eftir áfallið

Óvissan um líf Stefáns Karls Stef­áns­sonar færir honum og Stein­unni Ólínu Þor­steins­dóttur nýja heims­sýn. Tíminn er hugs­an­lega tak­mark­aður og þau ætla að nota hann vel. Þau segja frá því hvernig er að vakna til lífs­ins á skurð­borð­inu, hver til­gangur lífs­ins er, hvernig maður segir börn­unum sínum að maður sé með sjúk­dóm sem getur leitt til dauða og hvernig við­brögð fólks við veik­ind­unum eru hluti af lækn­ing­unni.

Myndband33 mín. lestur

Viðtal

Í sorg­inni einn

Gunnar Eyj­ólfs­son leik­ari lést á dög­unum, einn þekkt­asti og virt­asti lista­maður þjóð­ar­innar. Fyrir hálfum öðrum ára­tug tók Illugi Jök­uls­son röð við­tala við Gunnar, þar sem hann lýsti meðal ann­ars djúpu sam­bandi sínu við móður sína og því mikla áfalli sem hann varð fyrir þegar hún dó, er hann var aðeins 14 ára gam­all. Illugi hefur hér búið þessi við­töl til prent­unar.

24 mín. lestur

ViðtalAð gefa barnið sitt

Ætlaði aldrei að afsala sér föð­ur­hlut­verk­inu

Hugi Ingi­bjarts­son stóð frammi fyrir þeirri spurn­ingu hvort hann ætti að fá for­ræði yfir dóttur sinni og ala hana upp sem ein­stæður faðir eða gefa hana alfarið frá sér. Hann ákvað að gefa hana í trausti þess að hjá fóst­ur­for­eldrum myndi hún eign­ast betra líf en hann gæti gefið henni. Hann var hins vegar ekki til­bú­inn til þess að afsala sér föð­ur­hlut­verk­inu og stóð í þeirri trú að hann gæti haldið umgengni við dóttur sína. Hann seg­ist hafa verið svik­inn um það, þegar hann fær aðeins að taka hana tvisvar í mán­uði, fimm tíma í senn. Nú vill hann fá hana aftur.

14 mín. lestur

ViðtalAð gefa barnið sitt

„Ég þekki aðeins að vera móðir í 300 daga“

Hugrún Sig­ur­jóns­dóttir hafði verið full­vissuð af lækni að hún væri komin á aldur þegar hún varð óvart ólétt 45 ára gömul. Hún ákvað að eign­ast barnið, en eftir erf­iða með­göngu, erf­iða fæð­ingu og stöðugan grátur í marga mán­uði, gafst hún upp og gaf barnið frá sér til fólks sem hafði lengi þráð að eign­ast barn. Hún hefur aldrei séð eftir því.

20 mín. lestur

ViðtalBörn í leit að alþjóðlegri vernd

Flúðu grimmi­legar árásir tali­bana: Fá ekki vernd á Íslandi

Sjö manna fjöl­skyldu frá Afganistan verður vísað úr landi á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar á næstu dögum. Þeirra á meðal er stúlka sem var barin til óbóta af tali­bönum þriggja ára gömul. Fjöl­skyldan flúði ofsóknir og árásir tali­bana á síð­asta ári, en þeir réð­ust á fjöl­skyld­una þegar fjöl­skyldu­fað­ir­inn, Mir Ahmad Ahmadi, neit­aði að ganga til liðs við þá. Mir missti tennur í árásinni og fimm ára sonur hans hand­leggs­brotn­aði illa. Stúlkan er í dag lömuð öðrum megin í and­lit­inu og á erfitt með að tjá sig, en hefur tekið ótrú­legum fram­förum eftir að hún kom til Íslands. Fjöl­skyld­unni hefur verið gert að yfir­gefa eina landið þar sem þau hafa fundið til öryggis.

24 mín. lestur

Viðtal

Spán­verjar hafa kol­rangar hug­myndir um Ísland

Kata­lónski blaða­mað­ur­inn Èric Lluent stefnir að því að verða leið­andi í umfjöllun um Ísland í hinum spænsku­mæl­andi heimi. Næg séu tæki­færin, þar sem umfjöllun um Ísland í erlendum miðlum sé almennt skökk og ein­hliða. Á fyrsta mán­uði frétta­mið­ils­ins El Faro de Reykja­vík litu 13 þús­und manns inn og lásu fréttir af póli­tík, efna­hags- og menn­ing­ar­málum á Íslandi.
Viðtal

Útlend­ingur í eigin lífi

Friðgeir Ein­ars­son hefur vakið mikla aðdáun gagn­rýnenda með fyrsta smá­sagna­safni sínu, Takk fyrir að láta mig vita. Hann hefur áður vakið athygli fyrir sviðs­verk sín, en bók­mennta­fólk virð­ist líta svo á að nú fyrst sé hann orð­inn rit­höf­undur. Friðgeir fjallar gjarna um það hvers­dags­lega, það sem ekki þykir skáld­legt, í verkum sínum og seg­ist alltaf hafa upp­lifað sig sem dálítið utan við heim­inn. Sem barn ákvað hann meira að segja að þegja í heilt ár, kannski til að þurfa ekki að taka þátt í heimi hinna.

11 mín. lestur

Viðtal

Týndi heilu ári þegar hug­ur­inn þoldi ekki meir

Átta ára gömul var hún hætt að gráta og trúa á Guð. Þrett­ánda ald­ursárið er henni horfið. Það var þá sem faðir hennar lok­aði hana af niðri í kjall­ara og mis­þyrmdi í þrjá sól­ar­hringa. Árið 2005 steig Thelma Ásdís­ar­dóttir fram og sagði frá því hvernig faðir hennar gerði hana út í skipu­lögðu barna­vændi. Enn eru að birt­ast henni gamlar og áður grafnar minn­ingar, sem hún segir nú frá í fyrsta sinn.

27 mín. lestur

ViðtalLífsreynsla

Stúlkan með mávsung­ann

Inga Dóra Guð­munds­dóttir ólst upp á Íslandi til 12 ára ald­urs en flutti þá til Græn­lands. Hún varð lands­liðs­kona í tveimur löndum. Æsku­vin­kona hennar og frænka var myrt í fjöldamorði. Hún varð bæj­ar­full­trúi í Nuuk eftir glæsi­legan kosn­inga­sigur. Seinna varð hún áhrifa­mesti rit­stjóri Græn­lands. Nú er hún fram­kvæmda­stjóri Vest­nor­ræna ráðs­ins.

28 mín. lestur

Viðtal

„Ég læt ekki bjóða mér þetta“

Hann er einn af þeim sem hefur náð alla leið, er heims­þekktur í sínu fagi, með gull, silfur og brons í fartesk­inu og orðu frá for­set­anum. Hann er alinn upp sem sig­ur­veg­ari og gerir allt til þess að ná árangri. Hann þekkir líka það slæma við að vera á toppnum. „Að vera í þess­ari stöðu sem ég er í, það er mjög kalt þar, það blæs um þig og það er mjög ein­mana­legt.“ Guð­mundur Guð­munds­son segir frá lær­dómum fer­ils­ins, hvað þarf til að ná árangri og mik­il­vægi þess að ástunda hrein­skiptin sam­skipti, í heimi þar sem heið­ar­leiki virð­ist vera á und­an­haldi.

30 mín. lestur

Viðtal

Flutti til Afríku til að láta æsku­draum­inn ræt­ast

Allt frá því að Anna Þóra Bald­urs­dóttir var sjálf barn að aldri og sá fátæk afrísk börn í sjón­varp­inu hefur hún átt sér draum um að fara til Afríku að sinna hjálp­ar­starfi. Hún lét þann draum ræt­ast þegar hún var við nám í Háskóla Íslands og það varð ekki aftur snúið. Hún flutti út þar sem hún hefur verið und­an­farið ár að und­ir­búa stofnun heim­ilis fyrir óléttar ung­lings­stúlkur og börnin þeirra.

8 mín. lestur

Viðtal

Sígaun­inn sem átti apa

Örn Elías Guð­munds­son, Mugison, var að senda frá sér sína fimmtu plötu og þá fyrstu í fimm ár, Enjoy! Þrátt fyrir að vera alltaf kynntur sem Ísfirð­ing­ur­inn Mugison er Örn fæddur í Reykja­vík, alinn upp víða um heim og hefur aldrei haft fasta búsetu á Ísafirði. Íþróttir áttu hug hans allan sem barns en fimmtán ára gam­all valdi hann sér mentor sem hann bað að kenna sér að vera lista­maður, snar­hætti í íþrótt­unum, byrj­aði að reykja og drekka, semja ljóð og tón­list og hefur aldrei litið um öxl síðan.

Myndband11 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár