Erfið bar­átta við biskup Ellisif Tinna Víð­is­dóttir átti í harðri bar­áttu við sjálfan biskup Íslands sem leynt og ljóst vildi svipta hana starf­inu. Það tókst að lokum. Mynd: Kristinn Magnússon

Faðmlög og undirferli á Biskupsstofu

Ellisif Tinna Víð­is­dóttir var hrakin úr starfi sínu hjá kirkju­ráði og segir frá bænum og harð­vít­ugum deilum innan þess. Agnes Sig­urð­ar­dóttir biskup beitti sér gegn fram­kvæmda­stjór­anum með þeim hætti að Ellisif Tinna sagði sig úr þjóð­kirkj­unni eftir deil­urnar. Sagan á bak við átökin á Bisk­ups­stofu.

„Ég var búin að fá algjör­lega nóg eftir sam­skipti mín við biskup og sagði mig úr þjóð­kirkj­unni nýverið. Það er reyndar ekki sami hlut­ur­inn að vera trú­aður og til­heyra þjóð­kirkj­unni, það hefur reynslan kennt mér,“ segir Ellisif Tinna Víð­is­dóttir, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri kirkju­ráðs, sem hætti störfum eftir að hafa aðeins verið um eitt og hálft ár hjá þjóð­kirkj­unni. Fram­kvæmda­stjór­inn og starfs­lok hans hafa verið mikið til umræðu í fjöl­miðlum. Bisk­ups­menn rufu sam­komu­lag sem gert hafði verið um aðkomu sál­fræð­inga að deil­unni. Þá var lekið fölskum upp­lýs­ingum um him­inhá laun út af Bisk­ups­stofu sem Pressan birti. Lekinn virt­ist vera til að sverta fram­kvæmda­stjór­ann fyrr­ver­andi.

Aðdrag­andi starfs­lokanna var að Ellisif Tinna lenti á milli í deilum bisk­ups og ann­ara kirkju­ráðs­manna. Hún ákvað í ljósi trún­að­ar­brests­ins að segja sögu sína í Stund­inni og lýsa ástand­inu innan æðstu stjórnar kirkj­unnar. 

Mikil reynsla

Ellisif Tinna býr að mik­illi reynslu af ýmsum atburðum lífs­ins. Ung starf­aði hún sem toll­vörður. Frá­skilin og þriggja barna móðir ákvað hún að læra lög­fræði með­fram fullri vinnu. Dugn­að­ur­inn fleytti henni inn í starf hjá Sýslu­mann­inum á Kefla­vík­ur­flug­velli þar sem Jóhann R. Bene­dikts­son réði ríkjum. Hún var á þriðja ári í lög­fræði og átti ekki rétt á náms­láni.

„Ég var í skól­anum fyrir hádegi en ók svo til Kefla­víkur og vann hjá Jóhanni. Á kvöldin sinnti ég svo börnum og hús­verkum og lærði fram yfir mið­nætti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kirkjan

Mest lesið undanfarið ár