Númer 23
Mynd dagsins

Númer 23

Númer 23, þeir Ari Leifsson, sem leikur með Drammen­lið­inu Strøms­god­set og Riccardo Sottil, sem spilar með Cagliari á Sardiníu, í U21 lands­leik á Vík­ings­vell­inum nú seinni­part­inn í dag. Ítalía hafði betur gegn Íslandi 1-2 í jöfnum leik. Það má segja að David Beckham hafi komið með númer 23 inn í fót­bolt­ann þegar hann gekk til liðs við Real Madrid árið 2003. Körfu­bolta­snill­ing­ur­inn Michael Jordan hafði gert þetta númer ódauð­legt á ferli sínum með Chicago Bulls, frá 1984 til 1998. Og af hverju valdi Jordan 23? Hann lang­aði að vera með númer 45 eins og eldri bróðir sinn, sem var frá­tekið, svo hann deildi í með tveimur og hækk­aði upp í 23 því auð­vitað er 45 odda­tala.
Níu barna faðirinn frá Gaza
Mynd dagsins

Níu barna fað­ir­inn frá Gaza

Níu barna fað­ir­inn frá Gaza, Ayyad Saleh Abdulla Haday, er fæddur 1979 og er einn af þeim tæp­lega 600 ein­stak­ling­ingum sem hafa sótt hér um alþjóð­lega vernd á fyrstu 10 mán­uðum árs­ins. Flestir sem komið hafa und­an­farið eru frá Írak og Pel­est­ínu eins og Ayyad, og koma hingað með flugi frá löndum innan Schengen. Börnin hans níu eru fædd á 18 ára tíma­bili, sú elsta er fædd árið 2000, ein af fimm dætrum, sú yngsta er bara tveggja ára fædd 2018. Drengirnir eru fjórir. Atvinnu­leysi meðal ungs fólks á Gaza svæð­inu er um og yfir 70%.
Vetrarmein Ragnars
Mynd dagsins

Vetr­ar­mein Ragnars

Vetr­ar­mein Ragnars Jón­as­sonar. Hans nýjasta bók ger­ist á Siglu­firði, en fimm af hans tólf bókum hafa stað­inn sem sögu­svið. Bæinn þekkir hann mjög vel, svo vel að hann hefur meira að segja mátað eina fanga­klef­ann í pláss­inu. Hann sagði mér að hann hafi farið í stein­inn þar, í mjög stuttan tíma til að setja sig inn í sögu­sviðið. Óþægi­legt. En vel­gengnin hlýtur að vera þægi­leg, hann toppar met­sölu­lista í Þýska­landi og Frakk­landi og er að fá við­ur­kenn­ingar til hægri og vinstri fyrir verk sín, sem hafa verið gefin út á alla­vega 30 tungu­málum.
Laus skrúfa
Mynd dagsins

Laus skrúfa

Laus skrúfa á tog­ara í slippnum í Reykja­vík nú í morgun. Ísland vermir 19 sætið á lista yfir stærstu fisk­veiði­þjóð­irnar, en Kín­verjar eru lang stærstir. Til að ná öllum þessum afla úr sjó eru hér skráðir 45 tog­arar, 715 vél­skip og hvorki meira né minna en 822 trillur. Sú útgerð er ekki stór hér í höf­uð­borg­inni, en setur sterkan svip á mann­lífið á stöðum eins og Rifi, Bol­ung­ar­vík, í Grímsey og auð­vitað á Rauf­ar­höfn og á Bakka­firði.

Mest lesið undanfarið ár