Mynd: Unsplash

Farsímanet, kona og Evrópubúi á tunglinu

Samkvæmt nýj­ustu stefnu­skrá banda­rísku geim­ferða­stofn­un­ar­innar NASA stendur til að senda geim­fara til tungls­ins innan fjög­urra ára og hefja fasta búsetu þar árið 2030.

Til þess að sá draumur verði að veru­leika þarf að sjá tungl­förum fram­tíð­ar­innar fyrir öllum helstu nauð­synjum og í dag er gott far­síma­sam­band orð­inn órjúf­an­legur hluti af dag­legu lífi á jörð­inni. Það sama mun gilda um þá sem dvelja á tungl­inu til lengri eða skemmri tíma og því ekki seinna vænna en að koma upp þráð­lausu 4g neti á yfir­borð­inu.

NASA var að und­ir­rita samn­ing við finnska fjar­skipta­fyr­ir­tækið Nokia sem seg­ist ekki þurfa nema tvö ár til að þróa og fram­leiða bún­að­inn sem verður sendur til tungls­ins. Hann verði til­bú­inn til próf­ana síðla árs 2022 og lík­lega sendur með sömu eld­flaug og tungl­far­arnir sem eiga að fara af stað tveimur árum síðar, eða fyrir árs­lok 2024.

Samn­ing­ur­inn við Nokia hljóðar upp á um tvo millj­arða íslenskra króna en það er aðeins brot af kostn­að­inum við verk­efnið. Lang­dýr­asti hlut­inn er sjálft geimskotið og NASA hefur síð­ustu ár unnið mark­visst …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Þekking

Alheimurinn í nýju og skarpara ljósi
Þekking

Alheim­ur­inn í nýju og skarpara ljósi

Nýjasta stór­virki mann­kyns­ins, James Webb geim­sjón­auk­inn, er ætlað að skoða myndun fyrstu stjarna og vetr­ar­brauta alheims­ins. Hvar og hvenær kvikn­aði fyrsta ljósið í alheim­inum? Hvernig verða stjörnur og sól­kerfi til? Hvernig mynd­uð­ust vetr­ar­braut­irnar? Hvaða eðlis- og efna­fræði­lega eig­in­leika þurfa plánetur og sól­kerfi að hafa til að geyma líf? Fyrstu myndir sjón­aukans eru komnar. „Þær voru enn skýr­ari, skarp­ari og glæsi­legri en ég átti von á,“ segir Sævar Helgi Bragason.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár