Upp & niður
Mynd dagsins

Upp & niður

Inn­an­lands flugu 8.561 far­þegar í síð­asta mán­uði, sem var sam­dráttur upp á 71%. Rétt um helm­ingi fleiri far­þegar flugu til og frá land­inu, en þeir voru 19.288 nú í októ­ber sem er 96.5% sam­dráttur frá sama mán­uði í fyrra. Þá fóru 555.251 far­þegar um Kefla­vík­ur­flug­völl eða eins og ein og hálf íslensk þjóð. Áætl­un­ar­flug inn­an­lands nær til 11 staða: til Gríms­eyjar og á Gjögur, síðan er það Akureyri, Egils­staðir, Ísa­fjörður, Húsavík, Horna­fjörður, Bíldu­dalur, Vopna­fjörður og Þórshöfn á Langa­nesi. Þá er bara einn flug­völlur eftir, sá stærsti, hann liggur í Vatns­mýr­inni.
Reykjavík árið 1442
Mynd dagsins

Reykja­vík árið 1442

Samkvæmt tíma­tali Múhameðstrú­ar­manna er árið í ár 1442, hjá Gyðingum er árið 5780. Austur í Norður-Kóreu er árið 108 - sem er auð­vitað miðað við fæð­ing­arár hins stóra leið­toga Kim Il-sung, stofn­anda lands­ins. Núver­andi ein­valdur og son­ar­sonur Kim Jong-un, tók við emb­ætt­inu af föður sínum árið 99, en hann er fæddur árið 71. Fremst á mynd­inni er Menn­ing­ar­setur múslima á Íslandi, en þau hafa haft aðsetur í Ýmis­hús­inu síðan árið 100. Í bak­grunni rís Hall­gríms­kirkja, en horn­steinn hennar var lagður árið 33 og fram­kvæmdum var lokið 41 ári síðar, eða árið 74.
101 Kópasker
Mynd dagsins

101 Kópasker

Á slag­inu klukkan níu í morgun var hin 101 árs gamla Gunn­þór­unn Björns­dóttir frá Kópa­skeri mætt á hár­greiðslu­stof­una sína þegar hún opn­aði aftur eftir að dregið var úr sam­komu­tak­mörk­unum. Dúdú, eins og hún er alltaf kölluð, er ein sex­tíu íslend­inga sem eru hund­rað ára eða eldri. Elst er Gren­vík­ing­ur­inn Dóra Ólafs­dóttir sem er fædd árið 1912, sem­sagt 108 ára. Báðar eru þær hressar miðað við aldur og fyrri störf. „Já, ég gat ekki beðið eftir að kom­ast í klipp­ingu, þrátt fyrir að maður hitti nær enga á þessum skrítnu tímum - það versta við Covid er hvað umgengni við mann og annan er tak­mörkuð," sagði sú aldna, en hressa Kópa­skers­mær.

Mest lesið undanfarið ár