Og úti fyrir hvíla höf og grandar
Mynd dagsins

Og úti fyrir hvíla höf og grandar

Það er erfitt fyrir full­frískan ein­stak­ling að drukkna í Tjörn­inni, þar sem hún er ein­ungis 50cm djúp. Tjörnin er griðland fugla en þar stoppa við hátt í 50 teg­undir til lengri eða skemmri tíma. Þar af eru sjö anda­teg­undir sem verpa í og við Tjörnina, auk þess verpa þar bæði álftir og kríur. Á vissum tíma, líkt og nú, eru síla­mávarnir mjög áber­andi, ásamt örfáum svart­bökum. Fyr­ir­ferða­mestar eru þó braut­metis-sólgnu grá­gæs­irnar.
Dómsmálaráðherra telur að rétt hafi verið staðið að birtingu laga um laxeldi
FréttirMál Jóhanns Guðmundssonar

Dóms­mála­ráð­herra telur að rétt hafi verið staðið að birt­ingu laga um lax­eldi

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra telur að ekki hafi verið óeðli­legt hvernig Jóhann Guð­munds­son hlut­að­ist til um birt­ingu laga í fyrra. Þetta er annað mat en hjá ráðu­neyti Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar. Vanda­málið snýst um að ganga út frá því að starfs­menn hljóti að vinna sam­kvæmt vilja ráð­herra en ekki sam­kvæmt eigin geð­þótta.
Allir fá þá eitthvað fallegt...
Mynd dagsins

Allir fá þá eitt­hvað fal­legt...

Það er fátt nota­legra nú á aðvent­unni en leggja leið sína niður í miðbæ og kíkja í búð­ar­glugga, sjá eitt­hvað fal­legt til að gefa vinum og fjöl­skyldu. En versl­un­ar­mynstrið hjá okkur er að breyt­ast hratt. Samkvæmt nýrri könnun Zenter rann­sókna ætla sex af hverjum tíu Íslend­ingum að versla jóla­gjaf­irnar á net­inu þetta árið. Annað sem hefur breyst mikið frá í fyrra, er að hlut­fall milli erlendra og inn­lendra vef­versl­ana er nú hnífjafnt. Send­ingar hjá Póstinum vegna inn­lendrar net­versl­unar juk­ust um 120% nú í nóv­em­ber, á meðan pakkar frá erlendum vef­versl­unum dróg­ust örlítið saman milli ára.
Aðstæður á Landakoti aldrei ræddar í ríkisstjórn
FréttirHvað gerðist á Landakoti?

Aðstæður á Landa­koti aldrei ræddar í rík­is­stjórn

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra segir að almennt megi full­yrða að ráð­herra beri ekki refs­á­byrgð á athöfnum und­ir­manna sinna. Verði nið­ur­staða athug­unar land­læknis á hópsmit­inu á Landa­koti sú að van­ræksla stjórn­enda Land­spít­al­ans hafi valdið hópsmit­inu telur Svandís því ekki að hún beri ábyrgð þar á.
Norska fjármálaeftirlitið íhugar að sekta fyrrum viðskiptabanka Samherja um sex milljarða
FréttirSamherjaskjölin

Norska fjár­mála­eft­ir­litið íhugar að sekta fyrrum við­skipta­banka Samherja um sex millj­arða

DNB-bank­inn verður mögu­lega sektaður um rúma 6 millj­arða króna fyrir að hafa ekki fylgt lögum og reglum um pen­inga­þvætti nægi­lega vel. Fjár­mála­eft­ir­litið gerði rann­sókn á bank­anum eftir að sagt var frá við­skiptum Samherja í gegnum hann sem leiddi til þess að útgerð­ar­fé­lagið hætti sem við­skipta­vinur DNB.
Man einhver símanúmer lengur?
Mynd dagsins

Man ein­hver síma­númer lengur?

Árið 1906 kom sím­inn til Íslands, nánar til­tekið til Seyð­is­fjarðar með sæstreng frá Skotlandi, í gegnum Færeyjar. Bændur fjöl­menntu til Reykja­víkur það ár, til að mót­mæla lagn­ingu síma­línu þvert í gegnum sveitir lands­ins - þeir höfðu nefni­lega trölla­trú á því að sím­inn yrði fljót­lega þráð­laus. Það kom líka á dag­inn, reyndar átta­tíu árum seinna. Í dag eru 115.992 með virkar fast­línu­á­skriftir (stór hluti fyr­ir­tæki) og hvorki fleiri né færri en 475.842 far­síma­númer eru í notkun hjá þjóð sem telur bara 360 þús­und sálir.

Mest lesið undanfarið ár