Vara við „verulega neikvæðum“ umhverfisáhrifum af Svartárvirkjun við jaðar hálendisins
Fréttir

Vara við „veru­lega nei­kvæðum“ umhverf­is­á­hrifum af Svart­ár­virkjun við jaðar hálend­is­ins

„Mikil nátt­úru­verð­mæti raskast veru­lega“, segir í mati Skipu­lags­stofn­unar á fyr­ir­hug­aðri Svart­ár­virkjun á mörkum Bárð­ar­dals og hálend­is­ins fyrir norðan. Stofn­unin varar við röskun á „einum líf­rík­ustu og vatns­mestu lindám lands­ins“ og sér­stæðu lands­lagi með upp­lif­un­ar­gildi. Samkvæmt lögum hefði ekki þurft að gera umhverf­is­mat. Stofn­unin segir mats­skýrslu fram­kvæmda­að­il­anna skorta trú­verð­ug­leika.
Suðurflös og úti á Grenjum
Mynd dagsins

Suð­ur­flös og úti á Grenjum

Í morg­un­skímunni á Akranesi stilltu vit­arnir tveir á Suð­ur­flös sér upp fyrir mynda­töku.  Sá eldri og minni var reistur árið 1918, en sá stóri var tekin í notkun árið 1947. Næst lá leiðin vestur í slipp en þar úti á Grenjum húkir Höfr­ungur AK 91, en hann var smíð­aður af Skipa­smíða­stöð Þorgeirs & Ellerts á Akranesi fyrir útgerða­fé­lagið Harald Böðv­ars­son. Sann­kall­aður heima­bátur, sem hafði mikið aðdrátt­ar­afl fyrir þá sem nutu úti­vistar í veð­ur­blíð­unni í morgun.
Saga höfuðpaursins í Samherjamálinu: Einn ríkasti  maður Namibíu sem talinn var eiga tæpa 9 milljarða
FréttirSamherjaskjölin

Saga höf­uð­paurs­ins í Sam­herj­a­mál­inu: Einn rík­asti maður Namibíu sem tal­inn var eiga tæpa 9 millj­arða

James Hatuikulipi, sak­born­ingur í Sam­herj­a­mál­inu í Namibíu, er sagður vera helsti arki­tekt við­skipt­anna við íslenska útgerð­ar­fé­lagið. Hann hefur sankað að sér eignum upp á 9 millj­arða króna á liðnum ára­tugum og er Sam­herj­a­málið bara eitt af spill­ing­ar­mál­unum sem namibíska blaðið The Namibian segir að hann hafi auðg­ast á.
Innihaldslýsing
Mynd dagsins

Inni­halds­lýs­ing

Dagurinn í dag er mik­ill gleði­dagur, nú þegar fyrstu ein­stak­ling­arnir eru bólu­settir með nýja bólu­efn­inu frá Pfizers / Biontechs. Inni­halds­lýs­ingin hljóðar svona : ((4-hydrox­ibu­tyl)azandiyl) bis (hexan-6,1 -diyl) bis (2-hexyldeka­noat)(ALC-0315) 2-((polyetylenglykol)-2000) -N,N-ditetradecylacetamid (ALC-0159)1,2-diste­aroyl-sn-glycero-3-fos­fokolin (DSPC), Kolesterol, Kali­um­klorid, Kali­umdi­vate­fos­fat, Nat­ri­um­klorid, Din­at­ri­um­fos­fat­di­hydrat, Sackaros, og vatn. Heimild; SVT.
Háhýsi á háabakka
Mynd dagsins

Háhýsi á háa­bakka

Fyrr á árinu flutti Haf­rann­sókn­ar­stofnun í nýtt timb­ur­hús við Háabakka í Hafn­ar­fjarð­ar­höfn. Húsið er það stærsta á land­inu, hvorki meira né minna en 4.100 fer­metrar að stærð og fimm hæða hátt. Möl er notuð milli hæða, bæði til að þyngja bygg­ing­una og hljóð­ein­angra í leið­inni. Í þessu nýja húsi fá hátt í 200 starfs­menn Hafró full­komna skrif­stofu og rann­sókn­ar­að­stöðu auk þess að hýsa Sjávar­útvegs­skóla Þróunar­sam­vinnu­mið­stöðvar UNESCO á Íslandi.
Núll° í loftinu
Mynd dagsins

Núll° í loft­inu

Þó svo loft­hiti væri bara 0°C og sjór­inn í Foss­vog­inum óvenju kaldur, aðeins 1,3°C, var á annað hund­rað manns búið að taka sund­sprett á fyrsta hálf­tím­anum eftir opnun klukkan 11:00 í morgun. Þeir sem stunda sjó­sund reglu­lega segja mestu hætt­una vera hvað sundið sé ávana­bind­andi. Fyrir þá sem eru að gæla við að prófa þennan heilsu­bæt­andi lífsmáta, þá opnar aftur næst­kom­andi mánu­dag, þann fjórða í jólum.

Mest lesið undanfarið ár