Fyrstu Íslendingarnir bólusettir

Fyrstu Íslendingarnir bólusettir

Þor­leifur Hauksson ætlar ekki að gera neitt sér­stakt eftir að hafa fengið bólu­setn­ingu og fer ekki í bæinn nema hann þurfi.

Fyrsti Íslend­ing­ur­inn utan heil­brigð­is­stétta til að fá mótefna­spraut­una frá Pfizer sem ver hann gegn Covid-19 var Þor­leifur Hauksson, 63 ára gam­all íbúi á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Selja­hlíð í Selja­hverf­inu í Breið­holti, sem sam­þykkti að ríða á vaðið eftir að þrír aðrir íbúar heim­il­is­ins höfn­uðu því að verða fyrst. 

Þor­leifur sagð­ist í morgun vera „mjög svo“ spenntur, en tók athöfn­inni með hægð og líkti henni við venju­lega flensu­sprautu. „Þetta var bara eins og að láta sprauta sig við flensu,“ sagði Þor­leifur. 20 íbúar Selja­hlíðar fá sprautu í dag og verða að lík­indum ónæmir fyrir covid-19 sem valdið hefur víð­tækum tak­mörk­unum á dag­legu lífi und­an­farna níu mán­uði.

Þor­leifur kemur ágæt­lega undan far­aldr­inum. Spurður hvað hann hygg­ist gera eftir að hann fær seinni spraut­una að þremur vikum liðnum er svarið: „Ekkert sér­stakt.“

Um hvort hann muni ekki rjúka í bæinn, sagði Þor­leifur: „Nei, ég fer ekki í bæinn nema ég þurfi“. Hann neit­aði því ekki að þetta gæfi honum aukið frelsi til þess að fara um.

„Það hefur aðal­lega verið í sam­bandi við þegar það hefur þurft að hringja á undan sér til þess að koma til mín og það mátti bara koma einn í einu. Eins og tveir bræður mínir, þeir máttu ekki koma sama dag­inn.“ 

Margrét Árdís Ósvalds­dóttir, for­stöðu­maður Selja­hlíðar, sagði bólu­setn­ing­una sýna ljósið við enda gangn­anna. 

Þor­leifur heilsar ráð­herraFyrsti eldri borg­ar­inn til að fá bólu­efna­sprautu mundar handa­bandið að gömlum sið en Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra færir fram oln­bog­ann í takt við vend­ingar árs­ins 2020.
Þor­leifur fyrir bólu­setn­inguÞrír aðrir íbúar höfn­uðu því að verða fyrstir bólu­settir.

Heil­brigð­is­starfs­fólk er í fyrsta for­gangs­hópi og voru fyrstir þeirra bólu­settir í Skafta­hlíð 24 í morgun. Líklega tekur tvo daga að bólu­setja 770 manns í fyrstu umferð.

Fólk sem er í for­gangs­hópi fyrir bólu­setn­ingu mun fá skila­boð í síma um mæt­ingu í sprautu. Óskar Reyk­dals­son, for­stjóri Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, greindi frá því í Selja­hlíð í morgun að við­kom­andi fái upp­gef­inn ákveð­inn tíma í skila­boð­unum og komi með sím­ann og sýni strik­a­merki. „Síðan bíðum við í fimmtán til tutt­ugu mín­útur með fólk áður en það fær að fara heim. Og það eru örygg­is­ráð­staf­anir sem hefur sem betur fer nán­ast hvergi þurft að nota neitt. Sumir vilja fá sér vatns­sopa eða líður aðeins betri með því, en alvar­legar auka­verk­anir eru bara nán­ast engar þó það sé búið að sprauta millj­ónir.“ 

Hann sagði að gæði bólu­efn­is­ins skipti miklu máli og að það hafi varla sést svo gott bólu­efni. Þeir sem hafa alvar­legt ofnæmi og hafa farið í ofnæm­is­lost eiga ekki að fá bólu­setn­ing­una.

Starfs­maður Land­spít­ala bólu­settur
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár