„Menn geta dottið án þess að þekkja þyngdarlögmálið“
Mynd dagsins

„Menn geta dottið án þess að þekkja þyngd­ar­lög­málið“

Það stökk á mig bros þegar ég gekk fram­hjá Tómasi Guð­munds­syni, þar sem hann sat grímu­klæddur á bekk við Tjörnina í morgun. En auð­vitað hefur skáldið orðið sér úti um grímu, enda erfitt að halda 2ja metra fjar­lægð ef maður tyllir sér niður á bekk­inn við hlið hans. Samkvæmt Land­lækni er grímu­skylda þar sem ekki er unnt að tryggja 2ja metra nálægð­ar­tak­mörk milli ein­stak­linga sem ekki eru í nánum tengslum. Verkið af Tómasi er eftir Höllu Gunn­ars­dóttur mynd­höggv­ara og var sett upp árið 2010. *Fyr­ir­sögnin er spak­mæli eftir Tómas.
Bleikálóttur, Móvindóttur og allt þar á milli
Mynd dagsins

Bleik­ál­óttur, Móvind­óttur og allt þar á milli

Nýjustu tölur um hrossa­fjölda hér­lendis eru frá 2017 en þá voru 64.679 hross í lýð­veld­inu. Íslenski hest­ur­inn hefur rúm­lega 40 grunn­liti og yfir hund­rað lita­af­brigði; kor­g­jarpur, mold­óttur, rauð­vind­óttur, tví­stjörn­óttur, nös­óttur, dökk­jarpur, lit­för­óttur sléttu­skjóttur o.s.frv. Rauður og brúnn eru þó algeng­ustu litir íslenska hests­ins... en hvað lit­ur­inn heitir á þeim fremsta, sem ég mætti á Eyr­ar­bakka nú í morgun, hef ég ekki hug­mynd um.
HJÁLP
Mynd dagsins

HJÁLP

Rauði kross­inn heldur úti hjálp­ar­lín­unni 1717. Þar starfa 120 sjálf­boða­liðar allan sól­ar­hring­inn, alla daga árs­ins. Árið 2020 tóku þau á móti 24.000 sím­tölum. Sandra Björk Birg­is­dóttir, verk­efna­stjóri Hjálp­ar­sím­ans, segir spreng­ingu hafa orðið í fyrra, eða um 70% aukn­ingu frá árinu 2019. „Fólk er kvíðið vegna far­ald­urs­ins, ein­mana og margir í sjálfs­vígs­hug­leið­ingum. Mesta breyt­ingin er hve margir hafa hringt á nótt­unni, við höfum þurft að bæta við mann­skap á næt­ur­vökt­unum.“

Mest lesið undanfarið ár