Þingmenn lengi að læra á starfið

Rannsókn sýnir að þing­menn fá litla þjálfun í þing­störfum og skilja sumir ekki starfs­hætti árum eftir að þeir taka fyrst sæti.

Þingmenn lengi að læra á starfið
Alþingi Nær helm­ingur þing­manna sem kjörnir voru árið 2013 komu nýir inn. Mynd: Pressphotoz - Geiri Pix

Að læra inn á störf Alþingis er óform­legt og óskipu­lagt ferli fyrir nýja þing­menn og lítil starfs­þjálfun er í boði. Eftir tvö ár á þingi segj­ast þeir enn vera að læra og aðlag­ast venj­unum.

Þetta kemur fram í nýrri fræði­grein Stefaníu Ósk­ars­dóttur og Ómars H. Krist­munds­sonar við stjórn­mála­fræði­deild Háskóla Íslands sem birt­ist í tíma­rit­inu Stjórn­mál og stjórn­sýsla. Tekin voru við­töl við 16 nýja þing­menn sem hlutu kjör í alþing­is­kosn­ing­unum 2013, bæði úr nýju flokk­unum Bjartri fram­tíð og Pírötum, sem og þeim sem þegar voru á þingi. Í þeim kosn­ingum komu 27 af 63 kjörnum þing­mönnum nýir inn.

Frammi­staða nýrra þing­manna veltur á ýmsu, sam­kvæmt því sem kemur fram í grein­inni, meðal ann­ars hversu virkir þeir eru í að reyna að læra ferlið á Alþingi og hversu vel þeim gengur að mynda tengsl við aðra þing­menn og finna þá reynd­ari sem geta leið­beint þeim, sem stundum koma jafn­vel úr öðrum flokkum. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár