Sakborningur í Samherjamálinu tæmdi bankareikninga sína fyrir handtöku
FréttirSamherjaskjölin

Sak­born­ingur í Sam­herj­a­mál­inu tæmdi banka­reikn­inga sína fyrir hand­töku

Mike Nghip­unya, fyrr­ver­andi for­stjóri rík­is­fyr­ir­tæk­is­ins Fishcor, er sagður hafa fengið greiddar rúmar 90 millj­ónir íslenskra króna fyrir aðkomu sína að Sam­herj­a­mál­inu í Namibíu. Hann lifði hátt og hratt og varði háum fjár­hæðum í hem­sóknir á næt­ur­klúbba í Windhoek sam­kvæmt namibískum fjöl­miðlum.
Bundinn við bryggju í bullandi fiskiríi
Mynd dagsins

Bundinn við bryggju í bull­andi fiskiríi

Brottför línu­báts­ins Fjølnis GK seink­aði um tæpan sól­ar­hring eftir að skip­verji, nýkom­inn heim frá útlöndum, mætti til vinnu um borð seinni­part­inn í gær. Það áður en nið­ur­staða lá fyrir úr seinni sýna­tök­unni. Sú nið­ur­staða reynd­ist jákvæð. Í ljós kom eftir mótefna­mæl­ingu nú í morgun, að smitið reynd­ist gam­alt. Á meðan þurfti níu manna áhöfn að sæta ein­angrun og sótt­kví um borð. Málið er á borði lög­reglu sem brot á sótt­varn­ar­lögum.
Sakborningur í Samherjamálinu í Namibíu vill að ríkið greiði lögmannskostnað hans
FréttirSamherjaskjölin

Sak­born­ingur í Sam­herj­a­mál­inu í Namibíu vill að ríkið greiði lög­manns­kostnað hans

Sacky Shangala, fyrr­ver­andi rík­is­sak­sókn­ari og dóms­mála­ráð­herra Namibíu, vill að ríkið útvegi honum lög­mann eða greiði lög­manns­kostnað hans. Upp­lýs­ingar hafa komið fram sem bendla for­seta Namibíu við Sam­herj­a­málið og gæti krafa Shangala byggt á því að hann hafi verið að fylgja skip­unum.
Hvað kostar tonn af salti?
Mynd dagsins

Hvað kostar tonn af salti?

Við Cuxhavengötuna í Hafn­ar­firði bíða þessir 1.000 kílóa pokar af salti að kom­ast í næstu fisk­vinnslu. Í dag er salt­fiskur oft­ast for­salt­aður í 2-3 daga með sprautun og pæklun. Síðan er fisk­ur­inn þurr­salt­aður eða kaf­salt­aður í ker og mett­ast þá af salti. Við söltun fer nátt­úru­legur salt­styrkur í fis­kvöðva úr 0,2% í rúm­lega 20%. Helstu kaup­endur af salt­fiski eru Spánn, Portúgal, Brasilía og Ítalía. Pokinn með 1.000 kílóum af salti kosta 25.972 krónur, hingað kom­inn alla leið­ina frá Túnis.
Barnaverndarstofa fer yfir mál kvennana sem dvöldu á Laugalandi
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Barna­vernd­ar­stofa fer yfir mál kvenn­ana sem dvöldu á Lauga­landi

Heiða Björg Pálma­dóttir, for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu, segir að farið verði yfir mál­efni með­ferð­ar­heim­il­is­ins að Lauga­landi, áður í Varp­holti, hjá stofn­un­inni í ljósi umfjöll­unar Stund­ar­innar um meint harð­ræði og ofbeldi gegn stúlkum sem þar voru vistaðar á árunum 1997 til 2007. Heiða Björg segir einnig að hún sé boðin og búin að funda með þeim konum sem lýst hafa ofbeld­inu sem þær hafi orðið fyrir á heim­il­inu, standi vilji þeirra til þess.
Varnarlaus börn á vistheimili upplifðu ótta og ofríki
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Varn­ar­laus börn á vist­heim­ili upp­lifðu ótta og ofríki

Sex konur stíga fram í Stund­inni og lýsa alvar­legu ofbeldi sem þær segj­ast hafa orðið fyrir á meðan þær dvöldu á með­ferð­ar­heim­il­unum Varp­holti og Lauga­landi, sem stýrt var af sömu aðilum. For­stöðu­maður heim­il­anna hafnar ásök­unum. Ábend­ingar um ofbeldið bár­ust þegar árið 2000 en Barna­vernd­ar­stofa taldi ekk­ert hafa átt sér stað. Konurnar upp­lifa að málum þeirra hafi verið sópað undir teppið. „Við vorum bara börn.“
Áfram stelpur!
Mynd dagsins

Áfram stelpur!

Í dag var Þor­steinn Hall­dórs­son ráð­inn þjálf­ari A-lands­liðs kvenna. Hans fyrsta stóra mót með lið­inu verður EM á Englandi á næsta ári. Auðvitað líka að koma lands­lið­inu á næsta Heims­meist­ara­mót, en und­ankeppnin fyrir það mót hefst strax í haust. Þor­steinn hefur und­an­farin sex ár þjálfað Breiða­blik með góðum árangri. Þor­steinn vann sinn fyrsta leik sem þjálf­ari þegar kvenna­lið Fram vann FH úti í 3-0 í annarri deild­inni þann 3. júní árið 1993.

Mest lesið undanfarið ár