Prinsessa í einn dag
Mynd dagsins

Prinsessa í einn dag

Síðasta alvöru prinsessa Íslands var Margrethe Alex­andrine Þór­hildur Ingrid of Schleswig-Holstein-Sond­er­burg-Glücksburg, sem flestir þekkja betur sem drottn­ingu Dana­veldis, Margrét II. En í fjögur ár og þrjá mán­uði var hún okkar prinsessa, eða fram að því að við urðum sjálf­stæð þjóð í júní 1944. Í hádeg­inu á ösku­dag rakst ég á prinsess­una Ölbu, hennar helstu fyr­ir­mynd­irnar eru senni­lega ævin­týra­prinsessur H.C. Andersen og Disney - frekar en Margrét Dana­drottn­ing í æsku.
Sprengidagur með ritu og fýl
Mynd dagsins

Sprengi­dagur með ritu og fýl

Ritan og fýll­inn eru komin í Krýsu­vík­ur­bergið nú í miðjum febr­úar. Í þessu rúm­lega 6 km langa og 50 metra háa bjargi verpa um 60.000 fugla­pör, af níu teg­undum sjó­fugla. Langmest er af ritu og lang­víu, en auk þeirra eru þarna álka, stutt­nefja og fýll. Síðan er minna af lunda, topp­skarfi, silf­ur­máf og teistu. Fara þarf með gát um bjargið núna, en margar sprungur hafa opn­ast á bjarg­brún­inni eftir skjálfta­hrin­urnar sem hafa leikið Reykja­nesskag­ann illa síð­ustu miss­eri.
Þingvallavatn á bolludegi
Mynd dagsins

Þing­valla­vatn á bollu­degi

Mynd­irnar eru af Nesjaey, ein af þremur eyjum í Þing­valla­vatni, og teknar af Svína­nesi undir Svína­hlíð. Hinar eyj­arnar eru Sandey sem mynd­að­ist í miklu neð­an­vatns­gosi fyrir 2.500 árum og síðan Heið­ar­bæj­ar­hólmi. Þing­valla­vatn mynd­að­ist við land­sig og hraun­stíflur fyrir 12.000 árum, enda á miðjum Atl­ants­hafs­hryggnum, einmitt þar sem mesta gliðn­unin fer fram. Í Landnámu heitir þetta 84 km² stóra stöðu­vatn, Ölf­us­vatn.
Kunna hross að telja?
Mynd dagsins

Kunna hross að telja?

Þessir vinir og heima­menn Vatns­dals­ins í Austur-Húna­vatns­sýslu hafa lík­lega ekki hug­mynd um hve Vatns­dals­hól­arnir eru margir. En hól­arnir eru eitt af þremur ótelj­andi nátt­úru­fyr­ir­brigðum lands­ins. Hitt eru vötnin á Arn­ar­vatns­heiði, rétt sunnan við Vatns­dal­inn, og  síðan eyj­arnar í Breiða­firði. Það var fal­legt veður í Vatns­dalnum í dag, mjúk vetr­ar­birta og eins stigs frost.
Óður til NYC í porti á Laugaveginum
Mynd dagsins

Óður til NYC í porti á Lauga­veg­inum

Ljós­mynd­ar­inn og heim­spek­ing­ur­inn Snorri Sturlu­son er með sína fyrstu ljós­mynda­sýn­ingu hér heima, American Dreams, í Gallery Port á Lauga­veg­inum. Mynd­irnar tók hann á sextán ára tíma­bili, þegar hann bjó í borg­inni sem aldrei sefur, New York, árin 2001-2017. „Sýningin varð til í ein­hvers­konar hug­leiðslu á rölti mínu um stór­borg­ina. Líka rann­sókn á félags­legum og póli­tískum veru­leika banda­rísks sam­fé­lags.“ Sýningin stendur til 20 febr­úar.

Mest lesið undanfarið ár