Vegur 408 hjá Vegagerðinni
Mynd dagsins

Vegur 408 hjá Vega­gerð­inni

Horft er eftir vegi 408, upp Elliða­vatns­heið­ina í Heiðmörk. Svæðið var friðað árið 1950 og er stærsta úti­vist­ar­svæði í nágrenni höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins - heilir 32 fer­kíló­metrar að stærð og göngu­stígar þar spanna yfir 40 kíló­metra. Innan Heið­merkur eru Gvend­ar­brunnar sem hafa verið vatns­ból Reyk­vík­inga síðan 1909 og sjá nú rúm­lega 60% lands­manna fyrir fersku vatni. Skóg­rækt­ar­fé­lag Reykja­víkur hefur umsjón með svæð­inu, sem liggur í tún­fæti Reykja­víkur.
Félag Róberts Wessmann kaupir gamla Borgarbókasafnið af fyrirtæki í eigu félags í skattaskjólinu Cayman
Fréttir

Félag Róberts Wessmann kaupir gamla Borg­ar­bóka­safnið af fyr­ir­tæki í eigu félags í skatta­skjól­inu Cayman

Félag í meiri­hluta­eigu Róberts Wessman hefur eign­ast rúm­lega 700 fer­metra húsið í Þing­holts­stræti sem áður hýsti gamla Borg­ar­bóka­safnið. Húsið er nú veð­sett fyriir tæp­lega 1.400 millj­óna króna lánum félaga Róberts. Áður var húsið í eigu félags hægri handar Róberts hjá Alvogen, Árna Harð­ar­sonar og starfs­manns Alvogen í Banda­ríkj­unum Divya C Patel.
Forstjóri Barnaverndarstofu beitti sér hart til varnar Ingjaldi
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

For­stjóri Barna­vernd­ar­stofu beitti sér hart til varnar Ingjaldi

Bragi Guð­brands­son, þáver­andi for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu, lagð­ist þungt á rit­stjóra og blaða­mann DV vegna umfjöll­unar um meint ofbeldi af hálfu Ingjalds Arn­þórs­sonar, þáver­andi for­stöðu­manns með­ferð­ar­heim­il­is­ins á Lauga­landi. Þá beitti Bragi sér fyrir því að félags­mála­ráðu­neytið kann­aði ekki ásak­anir á hendur Ingjaldi og mælti með að ráð­herra tjáði sig ekki um málið.
Pólitískur rappari sagður samviskufangi á Spáni
Erlent

Póli­tískur rapp­ari sagður sam­visku­fangi á Spáni

Rapp­ar­inn Pablo Hasél hefur óvænt klofið rík­is­stjórn Spánar. Óeirð­ar­lög­regla hefur síð­ustu vikur átt í nær dag­legum bar­dögum við stuðn­ings­menn hans á götum Barcelona og ann­arra borga í Kata­lóníu. Deilt er um stöðu mál­frelsis í land­inu en Hasél situr nú í fang­elsi fyrir að bölva kon­ungs­fjöl­skyld­unni og upp­hefja ólög­leg hryðju­verka­sam­tök.
Svona yfirsást Barnaverndarstofu ofbeldið gegn stúlkunum á Laugalandi
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Svona yfir­s­ást Barna­vernd­ar­stofu ofbeldið gegn stúlk­unum á Lauga­landi

Minn­is­blöð vegna eft­ir­lits­heim­sókna á með­ferð­ar­heim­ilið á Lauga­landi draga upp mjög jákvæða mynd af líðan stúlkn­anna sem þar voru vistaðar. Þær lýs­ingar eru í full­komnu ósam­ræmi við vitn­is­burð stúlkn­anna sjálfra. Þær lýsa því að þær hafi ekki þorað að segja frá ótta við að Ingj­aldur Arn­þórs­son for­stöðu­maður myndi refsa þeim fyrir það.
Hvernig albanska mafían sigraði heiminn
Erlent

Hvernig albanska maf­ían sigr­aði heim­inn

Albanía er að breyt­ast í mafíu­ríki og vax­andi umsvif alþjóð­legra albanskra glæpa­hópa vekja ugg lög­reglu­yf­ir­valda um allan heim sem segja þá nýta sér Schengen-aðgang í illum til­gangi. Þeim hefur á örskömmum tíma tek­ist að sölsa undir sig glæpa­veldi sem tók aðra hópa ára­tugi að byggja upp. Styrkur þeirra bygg­ist á óbilandi tryggð sem á djúpar rætur í menn­ing­ar­arfi og fjöl­skyldu­tengslum.
Filman lengi lifi.... húrra!
Mynd dagsins

Filman lengi lifi.... húrra!

Kín­verska lista­konan og ljós­mynd­ar­inn Shu Yi hefur búið og starfað á Íslandi síð­ustu sjö árin. Nú hefur hún sett upp sína fyrstu einka­sýn­ingu, ljós­mynda­sýn­ing­una „Áningin“ í MUTT gall­erí á Lauga­veg­inum. Mynd­irnar eru 18 tals­ins og allar teknar á stóra filmu, með langt ljósop - allt upp í klukku­tíma. „Þetta eru myndir af núinu, hreyf­ing­ar­laust end­ur­varp og skoðun ofar því sem hug­ur­inn nemur. Þessum hug­hrifum nær filman, hún er nefni­lega óút­reikn­an­lega göldrótt.“

Mest lesið undanfarið ár