Töluðu sig saman um að taka yfir Dropbox Jóhannesar
FréttirSamherjaskjölin

Töluðu sig saman um að taka yfir Dropbox Jóhann­esar

„Það þarf að loka net­fang­inu hans og end­urstilla lyk­il­orðið á drop­box reikn­ingnum til að læsa hann úti af því,“ sagði Ingvar Júl­í­us­son, fjár­mála­stjóri Samherja á Kýpur, í skila­boðum til Örnu McClure, inn­an­hús­lög­fræð­ings útgerð­ar­innar, og Aðal­steins Helga­sonar lyk­il­starfs­manns. Jón Óttar Ólafsson rekur nákvæm­lega hvernig hann braust inn á Dropbox upp­ljóstr­ar­ans í Namib­íu­mál­inu í yfir­lýs­ingu sinni til dóm­stóla.
Yfirvöld í Namibíu halda áfram að reyna  að fá þrjá Samherjamenn framselda
FréttirSamherjaskjölin

Yfirvöld í Namibíu halda áfram að reyna að fá þrjá Sam­herj­a­menn fram­selda

Yfirvöld í Namibíu segj­ast eiga í nánum sam­skiptum við íslensk yfir­völd um að fá þrjá Sam­herj­a­menn fram­seld. Embætti rík­is­sak­sókn­ara á Íslandi hefur verið skýrt með að eng­inn Íslend­ingur verði fram­seldur til Namibíu. Yfi­ir­völd í Namibíu vilja mögu­lega að réttað verði yfir Sam­herj­a­mönnum á Íslandi gangi fram­sal ekki eftir.
Samherjamenn lýsa sér sem verkfærum í höndum uppljóstrarans
FréttirSamherjaskjölin

Sam­herj­a­menn lýsa sér sem verk­færum í höndum upp­ljóstr­ar­ans

„Það hefði ein­fald­lega ekki verið nægur tími, tæki­færi né orka fyrir mig að vera á kafi í fjar­lægri, lít­illi og frekar ómerki­legri starf­semi hinu megin á hnett­inum,“ segir Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, í yfir­lýs­ingu til namibískra dóm­stóla. Hann og aðrir lyk­il­starfs­menn útgerð­ar­innar vísa allri ábyrgð á Jóhannes Stef­áns­son upp­ljóstr­ara - líka á greiðslum sem gerðar voru eftir að hann hætti störfum.
Þorsteinn svarar engu um dylgjur í afsökunarbeiðni
Fréttir

Þor­steinn svarar engu um dylgjur í afsök­un­ar­beiðni

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, seg­ist ekki ætla að svara um efni afsök­un­ar­beiðni sem fyr­ir­tæki hans birti óund­ir­rit­aða á vef­síðu sinni um helg­ina. Stundin beindi til hans sömu spurn­ingu og lög­maður fyr­ir­tæk­is­ins hafði krafið Lilju Dögg Alfreðs­dóttur mennta­mála­ráð­herra svara um nokkrum vikum fyrr. Í afsök­un­ar­beiðn­inni er full­yrt að umfjöllun hafi verið „ein­hliða, ósann­gjörn og ekki alltaf byggð á stað­reyndum“.
Samherji segist hafa gengið of langt en sakar fjölmiðla um einhliða, ósanngjarnar og rangar fréttir
Fréttir„Skæruliðar“ Samherja

Samherji seg­ist hafa gengið of langt en sakar fjöl­miðla um ein­hliða, ósann­gjarnar og rangar fréttir

Í óund­ir­rit­aðri yfir­lýs­ingu sem birt var á vef Samherja í gær er beðist afsök­unar of hörðum við­brögðum fyr­ir­tæk­is­ins við frétta­flutn­ingi, sem sagður er ein­hliða, ósann­gjarn og ekki alltaf byggður á stað­reyndum. Vara­f­rétta­stjóri RÚV, Heiðar Örn Sig­ur­finns­son segir afsök­un­ar­beiðnin hefði verið betri, væri hún skýr­ari.
Laxeldisfyrirtækið hefur þrjár vikur til að biðja ráðherra um leyfi sem færi gegn mati ESA
FréttirLaxeldi

Lax­eld­is­fyr­ir­tækið hefur þrjár vikur til að biðja ráð­herra um leyfi sem færi gegn mati ESA

Lax­eld­is­fyr­ir­tækið Laxar þarf að sækja um bráða­birgð­ar­starfs­leyfi til sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra eftir að leyfi fyr­ir­tæk­is­ins var fellt úr gildi. Einungis einu sinni áður hefur starfs­leyfi lax­eld­is­fyr­ir­tækja verið fellt úr gildi og veitti ráð­herra þeim þá starfs­leyfi til bráða­birgða. Eft­ir­lits­stofnun ESA gagn­rýni þetta í úrskurði fyrir rúmu ári síðan.

Mest lesið undanfarið ár