Notaði morfínlyf í sex ár: „Ég horfði á mömmu og vildi líða eins og henni“
FréttirStórveldi sársaukans

Notaði mor­fín­lyf í sex ár: „Ég horfði á mömmu og vildi líða eins og henni“

Banda­ríkja­maður á sex­tugs­aldri, sem er hálfur Íslend­ingur, varð háður mor­fín­skyldum verkja­lyfjum og not­aði þau í fimm ár. Maðurinn er einn af þeim sem náði hins vegar að vera fún­ker­andi þjóð­fé­lags­þegn, stunda vinnu sem yfir­maður í iðn­fyr­ir­tæki og lifa fjöl­skyldu­lífi og sjá um börn sín allan þann tíma sem hann not­aði lyfin. Hann býr í Illinois-fylki þar sem íslenska lyfja­fyr­ir­tækið Actavis var með lang­mestu mark­aðs­hlut­deild­ina á ópíóða­mark­aðnum á árunum 2006 til 2014.
Íslenskir fjárfestar fengu 180 milljarða eftir að Actavis fór inn á ópíóðamarkaðinn í Bandaríkjunum
ViðskiptiStórveldi sársaukans

Íslenskir fjár­festar fengu 180 millj­arða eftir að Actavis fór inn á ópíóða­mark­að­inn í Banda­ríkj­unum

Alls fengu 4.000 íslenskir fjár­festar, sem voru í hlut­hafa­hópi Actavis, greidda sam­tals 180 millj­arða króna þegar fjár­fest­ing­ar­fé­lag Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar keypti þá út úr Actavis árið 2007. Um var að ræða það sem Björgólfur Thor kall­aði rétti­lega sjálfur „stærstu við­skipti Íslands­sög­unnar frá stríðslokum“. Verðmat á Actavis hefði aldrei verið það sem það var nema vegna þess að fyr­ir­tækið hafði náð fót­festu á verkja­lyfja­mark­að­inum í Banda­ríkj­unum.
Seðlabanki Íslands flýtir rannsókn á útboðinu í Íslandsbanka
ViðskiptiSalan á Íslandsbanka

Seðla­banki Íslands flýtir rann­sókn á útboð­inu í Íslands­banka

Banka­sýsla rík­is­ins setti fram gagn­rýni á sölu­með­ferð hluta­bréfa í Íslands­banka. Gagn­rýnin beind­ist að þeim bönkum og verð­bréfa­fyr­ir­tækjum sem seldu hluta­bréfin þó eng­inn einn aðili hefði verið nefndur. Talsmenn þess­ara fyr­ir­tækja kjósa að tjá sig ekki um hana utan einn, verð­bréfa­fyr­ir­tækið Fossar mark­aðir, sem und­ir­strikar að félagið hafi fylgt lögum og reglum í útboð­inu. Seðla­bank­inn seg­ist ætla að flýta rann­sókn­inni á útboð­inu.
Dómsmálaráðherra í þyrlu Landhelgisgæslunnar: „Skutluðu okkur í leiðinni“
Fréttir

Dóms­mála­ráð­herra í þyrlu Land­helg­is­gæsl­unnar: „Skutluðu okkur í leið­inni“

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra stað­festir í sam­tali við Stundina að hann hafi notað tæki­færið, tekið þátt í æfingu Land­helg­is­gæsl­unnar í Breiða­firði og fengið í leið­inni far með þyrlu gæsl­unnar frá Bíldudal yfir á Stykk­is­hólm. Rík­is­end­ur­skoðun hefur gagn­rýnt að ráð­herrar nýti loft­för í eigu eða leigu stofn­ana rík­iss­ins.
Actavis og ópíóðafaraldurinn: Eigandinn Björgólfur segist ekki „búa yfir upplýsingum“
ViðskiptiStórveldi sársaukans

Actavis og ópíóða­far­ald­ur­inn: Eig­and­inn Björgólfur seg­ist ekki „búa yfir upp­lýs­ingum“

Björgólfur Thor Björg­ólfs­son, fjár­festir og fyrrum stærsti hlut­hafi og stjórn­ar­for­maður Actavis, svarar ekki efn­is­lega spurn­ingum um þatt­töku Actavis á ópíóða­mark­aðnum í Banda­ríkj­unum á árunum 2006 til 2012. Á meðan Björgólfur Thor átti félagið seldi það tæp­lega 1 af hverjum 3 ópíóða­töflum sem seldar voru í Banda­ríkj­unum, tekjur félaga­ins marg­föld­uð­ust og banda­rísk yfir­völd gagn­rýndu félagið fyrir mark­aðs­setn­ingu á mor­fín­lyfjum og báðu Actavis um að snar­minnka fram­leiðslu á þeim.
Róbert dregur úr ábyrgð sinni: Seldu hlutfallslega mest af ópíóðum þegar hann var forstjóri
ViðskiptiStórveldi sársaukans

Róbert dregur úr ábyrgð sinni: Seldu hlut­falls­lega mest af ópíóðum þegar hann var for­stjóri

Fyrr­ver­andi for­stjóri Actavis, Róbert Wessman, segir að hann hafi ætíð haft það að leið­ar­ljósi sem lyfja­for­stjóri að bæta líf fólks. Hann vill meina að stefna Actavis í sölu á ópíóðum í Banda­ríkj­unum hafi breyst eftir að hann hætti hjá félag­inu. Mark­aðs­hlut­deild Actavis á lands­vísu í Banda­ríkj­unum var hins vegar mest árið 2007, 38.1 pró­sent á lands­vísu, þegar Róbert var enn for­stjóri félags­ins.
Bankasýslan skoðar lagalega stöðu sína og heldur eftir söluþóknun
FréttirSalan á Íslandsbanka

Banka­sýslan skoðar laga­lega stöðu sína og heldur eftir sölu­þóknun

„Komi í ljós að ein­hverjir sölu­að­ilar hafi ekki staðið undir því trausti sem Banka­sýslan gerði til þeirra mun það hafa áhrif á sölu­þókn­anir til þeirra,“ segir í til­kynn­ingu stjórnar stofn­un­ar­innar. For­stjóri hennar, Jón Gunnar Jónsson, sagði við Stundina í síð­ustu viku að nauð­syn­legt væri að treysta fjár­mála­stofn­un­unum.
Mörg hundruð milljarða afskriftir hjá nýju hluthöfum Íslandsbanka
FréttirSalan á Íslandsbanka

Mörg hund­ruð millj­arða afskriftir hjá nýju hlut­höfum Íslands­banka

Þegar kaup­enda­listi Íslands­banka var loks­ins gerður opin­ber komu fram mörg nöfn sem urðu vel þekkt fyrir og eftir íslenska banka­hrunið árið 2008. Meðal kaup­enda að hluta­bréfum rík­is­ins í bank­anum voru fjöl­margir aðilar sem fengu afskrif­aðar háar fjár­hæðir í kjöl­far hruns­ins. Athygli vakti hversu margir í hlut­hafa­hópnum höfðu áður verið meðal stórra hlut­hafa og lán­tak­enda í Glitni, sem síðar varð Íslands­banki.

Mest lesið undanfarið ár