Ríkið hefur ofgreitt kjörnum fulltrúum og embættismönnum samtals 105 milljónir
Fréttir

Ríkið hefur ofgreitt kjörnum full­trúum og emb­ætt­is­mönnum sam­tals 105 millj­ónir

Vel á þriðja hund­rað kjör­inna full­trúa, ráð­herra og emb­ætt­is­manna hafa á síð­ustu árum fengið greidd of há laun frá Fjár­sýslu rík­is­ins, sem studd­ist við rangt við­mið við launa­hækk­anir. Samtals nemur ofgreiðslan 105 millj­ónum króna. 45 þess­ara ein­stak­linga eru ekki lengur á launa­skrá rík­is­ins. Tólf mán­aða end­ur­greiðslu­á­ætlun hefur verið sam­þykkt.
Forsætisráðherra ræddi ekki mál Moshenskys
FréttirÓlígarkinn okkar

For­sæt­is­ráð­herra ræddi ekki mál Mos­hen­skys

Engar umræður urðu um stöðu kjör­ræð­is­manns Íslands í Hvíta-Rúss­landi, Alex­and­ers Mos­hen­skys, á fundi Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra með leið­toga hví­trúss­nesku stjórn­ar­and­stöð­unnar, Svi­at­lönu Tsikhanouskayu. Katrín vill engu svara um eigin skoðun á stöðu kjör­ræð­is­manns­ins sem er náinn banda­maður ein­ræð­is­herr­ans í Minsk, Alex­and­ers Lukashenko.
Bjarni undir í rannsókn Ríkisendurskoðunar
Fréttir

Bjarni undir í rann­sókn Rík­is­end­ur­skoð­unar

Sú end­ur­skoð­un­ar­á­ætlun sem lagt var af stað með í rann­sókn Rík­is­end­ur­skoð­unar á sölu rík­is­ins á hlutum í Íslands­banka snýr fyrst og fremst að Banka­sýslu rík­is­ins. Guð­mundur Björgvin Helgason rík­is­end­ur­skoð­andi segir að fjár­mála­ráð­herra og ráðu­neyti hans séu líka undir og að áætl­unin taki breyt­ingum eftir því sem rann­sókn­inni vindi fram.
Stjarnfræðilegur kostnaður Úkraínustríðsins
ErlentÚkraínustríðið

Stjarn­fræði­legur kostn­aður Úkra­ínu­stríðs­ins

Mörg hund­ruð falla í inn­rás Rússa í Úkraínu á degi hverjum, mann­tjónið eykst sífellt og ólýs­an­legar hörm­ungar þar víða dag­legt brauð. Þess utan eru efna­hags­legar ham­farir að eiga sér stað í Úkraínu en þær voru raunar hafnar áður en inn­rásin hófst. Útlitið var svart fyrir en nú er stór hluti lands­ins ein rjúk­andi rúst og vegna land­lægrar spill­ingar mun reyn­ast erfitt að fá fjár­hags­að­stoð erlendis frá til upp­bygg­ingar að stríðslokum.
Djarfar fullyrðingar eftir hálftíma vettvangsferð plastsendinefndar
FréttirPlastið fundið

Djarfar full­yrð­ingar eftir hálf­tíma vett­vangs­ferð plast­sendi­nefndar

Úrvinnslu­sjóður ætlar ekk­ert að aðhaf­ast vegna íslenska plast­s­ins sem fannst í vöru­húsi í Svíþjóð. Sendi­nefnd sem fór á stað­inn og komst að þeirri nið­ur­stöðu að þar væri ein­ungis lítið magn af íslensku plasti virð­ist hafa byggt þá nið­ur­stöðu sína á hæpnum for­sendum. Full­yrð­ingar í skýrslu nefnd­ar­innar stand­ast ekki skoðun.
Konur í Bandaríkjunum hafa verið sviptar réttinum til þungunarrofs
Fréttir

Konur í Banda­ríkj­unum hafa verið sviptar rétt­inum til þung­un­ar­rofs

Hæsti­réttur Banda­ríkj­anna snéri við fyrri nið­ur­stöðu sem tryggðu rétt kvenna til að láta rjúfa með­göngu. Rétt­ur­inn var tryggður fyrir fimm­tíu árum síðan í máli Roe gegn Wade en nú hefur dóm­stóll­inn ákveðið að stjórn­ar­skrá lands­ins tryggi ekki sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétt kvenna. Fóst­ur­eyð­ingar urðu sjálf­krafa bann­aðar í fjölda fylkja við upp­kvaðn­ingu dóms­ins.
„Ég mun aldrei fyrirgefa þeim“
Fréttir

„Ég mun aldrei fyr­ir­gefa þeim“

Kristín Sóley Krist­ins­dóttir seg­ist aldrei muni fyr­ir­gefa sam­fé­lag­inu í Garði fyrir að hafa brugð­ist dóttur hennar og úthrópað sem lygara eftir að hún greindi frá því þegar hún var tólf ára að maður í bænum hefði beitt hana kyn­ferð­is­of­beldi, fyrst þegar hún var átta ár gömul. Maðurinn sem var á sex­tugs­aldri á þessum tíma var dæmdur í átján mán­aða fang­elsi fyrir að hafa ítrekað beitt Lilju, dóttur Krist­ínar Sóleyjar, ofbeldi.

Mest lesið undanfarið ár