Albanska konan hefur ekkert sofið og samdrættir komnir af stað

Ferðalag óléttu albönsku kon­unnar sem vísað var úr landi, var vanda­mál að mati lækna hennar í Albaníu. Hún hefur ekk­ert sofið í marga sól­ar­hringa og var í áhættu­hópi vegna fyrri fæð­ingar. Eig­in­maður hennar hefur veru­legar áhyggjur og spyr hvar ábyrgðin liggi?

Albanska konan hefur ekkert sofið og samdrættir komnir af stað
Á spít­ala Konan er nú á sjúkra­húsi í Albaníu og sam­drættir komnir af stað.

Albanska konan sem send var úr landi gengin 37 vikur á leið er komin á sjúkra­hús í Albaníu og farin að finna fyrir sam­dráttum. Ferðin var vanda­mál, að mati lækna, segir aðgerð­ar­sinni sem hefur verið í sam­skiptum við hana.

„Hver ætlar að bera ábyrgð á því hvernig er komið fyrir konu minni og barni?“ spurði eig­in­maður kon­unnar þegar Stundin náði stutt­lega tali af honum. Hann var staddur á spít­al­anum og sagð­ist hafa veru­lega áhyggjur af konu sinni og ófæddu barni og bætti við að hið langa ferða­lag hefði verið henni veru­lega erfitt. Þá sagði hann dreng­inn þeirra, sem er tveggja ára, vera mjög ringlaðan og þreyttan eftir það sem á undan er gengið. „Hann er mjög þreyttur og borðar ekk­ert.“

„Ég hef verið í sam­bandi við hana í dag,“ segir Morgane Priet Maheo úr sam­tök­unum Réttur barna á flótta. „Hún sendi mér fyrst að henni væri ekki að líða vel og hún ætl­aði til læknis. Núna er hún á sjúkra­húsi. Þeir halda að hún sé að fara af stað. Hún þurfti keis­ara­skurð 36 vikna ólétt við síð­asta barn, þannig að það sé stór hætta á að hún sé að fara af stað. Ferðin var vanda­mál, sagði hún, að mati lækn­is­ins. Hún var í áhættu­hópi út af keis­ara­skurð­inum.“

Morgane segir kon­una hafa beðið um aðstoð flug­freyju í flug­inu frá Íslandi en lög­reglan hafi vaktað fjöl­skyld­una stíft. „Lög­reglan tók sím­ann af þeim þangað til þau komu til Albaníu,“ segir Morgane. „Þegar lög­reglan kom klukkan sex vissi hún ekki að hún þyrfti að fara þannig að hún svaf ekk­ert í raun­inni í marga sól­ar­hringa.“

Samtökin Réttur barna á flótta birtu færslu um málið í dag. „Við vorum að fá fréttir frá óléttu kon­unni sem var send úr landi í gær þrátt fyrir vott­orð frá kven­sjúk­dóma­lækni sem mælti á móti því,“ segir í færsl­unni. „Vegna langs og þreyt­andi ferða­lags er hún núna í skoðun með mikla sam­drætti og á í hættu á að fara af stað. Við erum með mynd af vott­orði frá læknum sem sáu um hana og hún verður nú flutt á annan spít­ala þar sem verið er að und­ir­búa fæð­ingu fyr­ir­bura. Þar sem hennar fyrri fæð­ing var með keis­ara fannst lækn­unum mik­il­vægt að færa hana yfir á aðra stofnun. Ekki er víst að hún fari af stað í fæð­ingu en þar sem sam­drættir eru svo sterkir er við­bún­að­ur­inn mik­ill. Það eina sem við getum gert er að bíða og vona það besta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár