Fortíð og framtíð ISIS

Abu Bakar al Baghdadi, leið­togi og stofn­andi ein­hverra hrotta­leg­ustu hryðju­verka­sam­taka heims, er sagður hafa endað daga sína skríð­andi á hnjánum í jarð­göngum með gelt­andi hunda á hæl­unum. Það var Banda­ríkja­her sem elti hann uppi á landa­mærum Sýrlands og Tyrk­lands en kald­hæðni þess er sú að það var aðeins vegna þeirra eigin mis­taka á sínum tíma sem Baghdadi átti mögu­leika á að mynda sam­tökin sem við þekkjum sem ISIS. Hvað ger­ist nú, þegar hann er fall­inn?

Fortíð og framtíð ISIS
For­ing­inn fall­inn Abu Bakar al Baghdadi gekk mjög langt í að þróa kerfi sem átti að koma í veg fyrir að hægt væri að ráða hann afdögum, svo langt meira að segja að eig­in­kona hans vissi ekki að hann væri leið­togi ISIS fyrr en hún þekkti rödd hans í útvarp­inu. Mynd: -

Eig­in­legt upp­haf sam­tak­anna sem kenna sig við íslamskt ríki má rekja til Bucca-fanga­búð­anna sem Banda­ríkja­menn ráku í Írak eftir inn­rás­ina 2003. Þar voru and­spyrnu­menn úr öllum áttum lok­aðir inni á bak við girð­ingar en fengu nán­ast óheftan aðgang að hver öðrum. Þeirra á meðal var mað­ur­inn sem í dag gengur undir nafn­inu Abu Bakar al Baghdadi, en hann var á þeim tíma óþekktur klerkur.

Lyk­ill­inn að árangri hans var að sam­eina þær tvær ólíku fylk­ingar sem höfðu mynd­ast í fanga­búð­unum. Annars vegar var um að ræða hóp sem hafði verið hluti af stjórn­ar­her Saddams Hussein og kunni skil á hern­aði, skipu­lagi og síð­ast en ekki síst gat brúkað skrið­dreka og önnur flókin stríðstól. Þeir voru þarna í haldi vegna þess að Banda­ríkja­stjórn ákvað að leysa upp allan íraska her­inn eftir inn­rás­ina og gera fyrrum hers­höfð­ingja að óvinum sínum, með þeim afleið­ingum að þeir gengu til liðs við and­spyrnu­hreyf­ingar í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár