Fáar stelpur stunda íþróttir í Efra-Breiðholti

Lítil þátt­taka er í skipu­lögðu íþrótta­starfi í póst­núm­eri 111. Aðeins rétt rúm­lega 11 pró­sent kvenna búsettra í hverf­inu taka þátt. Erf­ið­leikar við að ná til inn­flytj­enda og efna­hags­leg staða lík­legir áhrifa­þættir.

Erfitt að ná til stelpna
Erfitt að ná til stelpna Gögn sýna fram á litla þátt­töku kvenna í skipu­lögðum íþróttum í Efra-Breið­holti. Fram­kvæmda­stjóri Leiknis segir félagið eiga í miklum erf­ið­leikum með að ná til inn­flytj­enda og stúlkna. Mynd: Leiknir.is

Mun færri íbúar í Efra-Breið­holti stunda skipu­lagðar íþróttir heldur en íbúar ann­arra hverfa Reykja­vík­ur­borgar. Raunar stunda íbúar í Efra-Breið­holti skipu­lagðar íþróttir í mun minna mæli en víð­ast hvar ann­ars staðar á land­inu og skera sig úr þegar kemur að fjöl­menn­ari svæðum. Aðeins 11,6 pró­sent kvenna búsettar í hverf­inu taka þátt í skipu­lagðri íþrótta­starf­semi.

Nýting á frí­stunda­korti Reykja­vík­ur­borgar fyrir börn á aldr­inum 6–18 ára er veru­lega mikið minni í Efra-Breið­holti heldur en öðrum hverfum borg­ar­innar. Við­mæl­endur Stund­ar­innar telja ljóst að hátt hlut­fall fólks af erlendum upp­runa af íbúa­fjöld­anum hafi þarna tölu­vert mikið að segja. Ekki hafi tek­ist að kynna inn­flytj­endum sem búsettir eru í hverf­inu frí­stunda­kortið, sem aftur hafi, í það minnsta í ein­hverjum mæli, þau áhrif að þessi börn taki ekki þátt í skipu­lögðu íþrótta­starfi. Þá er efna­hags­leg staða íbúa hverf­is­ins talin áhrifa­þáttur í sömu átt en fjöldi þeirra sem þiggja fjár­hags­að­stoð Reykja­vík­ur­borgar er veru­lega mestur í Breið­holti af …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

3
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár