Útvarp Saga skilar hagnaði

Fé­lag­ið hef­ur skil­að hagn­aði síð­ustu þrjú ár, sam­kvæmt árs­reikn­ing­um.

Útvarp Saga skilar hagnaði
Útvarp Saga Fjölmiðillinn fær helst tekjur af kostun og styrkjum.

Rekstrarfélag Útvarps Sögu hagnaðist um 1,6 milljónir króna í fyrra samkvæmt nýbirtum ársreikningi þess. Er fjölmiðillinn einn fárra einkarekinna miðla á Íslandi sem skilað hefur hagnaði undanfarin ár.

Félagið SagaNet - Útvarp Saga ehf. er að fullu í eigu Arnþrúðar Karlsdóttur útvarpsstjóra. Fjölmiðillinn hagnaðist um 2,4 milljónir króna árið 2017 og 1,3 milljónir króna árið 2016, en fyrra rekstrarfélag hans var úrskurðað gjaldþrota í lok árs 2014.

Samkvæmt ársreikningnum standa tekjur félagsins að mestu saman af kostun og styrkjum. Á vef útvarpsstöðvarinnar er velvildarmönnum boðið að styrkja hana um fasta upphæð mánaðarlega. Stöðin fékk 37 milljónir króna vegna kostunar í fyrra og 14,7 milljónir króna í styrki. Kostnaður við dagskrárgerð dróst verulega saman á milli ára, en á móti nær tvöfaldaðist launakostnaður, mestmegnis vegna kostnaðar við textagerð og auglýsingasölu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjölmiðlamál

Hundruð milljóna taprekstur fjölmiðla telst ekki til fjárhagserfiðleika
ÚttektFjölmiðlamál

Hundruð millj­óna ta­prekst­ur fjöl­miðla telst ekki til fjár­hagserf­ið­leika

Stærst­ur hluti Covid-styrkja til fjöl­miðla fer til þriggja sem töp­uðu hundruð­um millj­óna í fyrra. Lilja Al­freðs­dótt­ir mennta­mála­ráð­herra vildi að smærri miðl­ar fengju meira. And­staða var á Al­þingi og ekki er vit­að hvort fjöl­miðla­frum­varp verð­ur aft­ur lagt fram. Pró­fess­or seg­ir pen­ing­um aus­ið til hags­muna­að­ila.

Mest lesið

Oddvitasamtöl Heimildarinnar hefjast í kvöld
6
Stjórnmál

Odd­vita­sam­töl Heim­ild­ar­inn­ar hefjast í kvöld

Les­end­ur geta sent inn spurn­ing­ar fyr­ir odd­vita­sam­töl Heim­ild­ar­inn­ar fyr­ir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­ar. Í kvöld mæt­ast Sanna Magda­lena Mörtu­dótt­ir fyr­ir Vinstr­ið og Silja Sól­ey Birg­is­dótt­ir fyr­ir Sósí­al­ista­flokk Ís­lands í fyrri um­ferð og Ein­ar Þor­steins­son fyr­ir Fram­sókn og Björg Magnús­dótt­ir fyr­ir Við­reisn í þeirri seinni.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskt kollagen framleitt á Blönduósi
5
Nýsköpun

Ís­lenskt kolla­gen fram­leitt á Blönduósi

Norð­an heiða, nán­ar til­tek­ið á Blönduósi, er ís­lenskt kolla­gen fram­leitt. Um er að ræða fyr­ir­tæk­ið Prot­is sem nýt­ir sér verk­smiðju Vil­ko þar á slóð­um, en um er að ræða sömu eig­enda­hópa að miklu leyti. Það er ým­is­legt í far­vatn­inu hjá þeim, með­al ann­ars sam­starf við drykkjar­vöru­fram­leið­end­ur er­lend­is sem eig­and­inn bind­ur mikl­ar von­ir við.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár