Erfðafjárskattur lækkaður um tvo milljarða króna

Fyr­ir­huguð laga­setn­ing Bjarna Bene­dikts­sonar um þrepa­skiptan erfða­fjár­skatt mun kosta rík­is­sjóð tvo millj­arða á næsta ári. Frum­varpið var áður lagt fram af Óla Birni Kárasyni og tíu þing­mönnum Sjálf­stæð­is­flokks. Mið­flokk­ur­inn vill afnema skatt­inn.

Erfðafjárskattur lækkaður um tvo milljarða króna
Bjarni Bene­dikts­son Ráð­stöf­un­ar­tekjur þeirra sem fá úthlutað arfi munu hækka verði skatt­ur­inn lækk­aður. Mynd: Geiri Pix / Pressphotos.biz

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, und­ir­býr nú nýtt frum­varp um lækkun erfða­fjár­skatts sem efn­is­lega er sam­hljóða frum­varpi Óla Björns Kára­sonar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og tíu sam­flokks­manna sem lagt var fram í fyrra. Verði það að lögum munu tekjur rík­is­sjóðs af erfða­fjár­skatti lækka um tæp 40 pró­sent.

Málið er á þing­mála­skrá rík­is­stjórnar Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks, og verður lagt fram í októ­ber sam­kvæmt henni. Í frum­varp­inu verður lagt til að erfða­fjár­skattur verði þrepa­skiptur þannig að hann nemi 5 pró­sentum af fjár­hæð allt að 75 millj­ónum króna, en 10 pró­sentum af því sem er umfram þá upp­hæð. Skatt­ur­inn er nú 10 pró­sent óháð fjár­hæð. Þá er einnig lagt til að fjár­hæð­ar­mörk skatt­þrepanna taki árlegum breyt­ingum miðað við þróun vísi­tölu neyslu­verðs. Fyr­ir­fram­greiddur arfur verður skatt­lagður á hærra skatt­þrep­inu, það er 10 pró­sent.

Í fjár­laga­frum­varpi fyrir árið 2020 er gert ráð fyrir að tekjur af erfða­fjár­skatti verði 5,2 millj­arðar króna. Verði þrepa­skipt­ing­unni komið á …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár