Fjölmiðlafólk í boðsferð til Vopnafjarðar á kostnað James Ratcliffe

Fulltrúar fjögurra fjölmiðla þáðu boð um flug frá Reykjavík á blaðamanna­fund sem meðal annars var haldinn til að draga úr neikvæðri umfjöllun um fjár­festingar Ratcliffe.

Brugðist við neikvæðri umfjöllun
Brugðist við nei­kvæðri umfjöllun Fjöl­miðla­fólki var flogið austur á Vopna­fjörð á kostnað James Ratcliffe í gær á blaða­manna­fund.

Fjölmiðla­fólk frá í það minnsta fjórum fjöl­miðlum þáði flug á kostnað James Ratcliffe frá Reykjavík austur á Vopna­fjörð í gær þar sem haldinn var blaðamanna­fundur um áætlanir breska auðkýfingsins á svæðinu. Fundurinn var meðal annars haldinn með það í huga að draga úr neikvæðri umfjöllun um fjár­festingar Ratcliffe á Norð­austurlandi.

Þau Aðal­heiður Ámunda­dóttir blaða­maður og Ernir Eyjólfsson ljós­myndari frá Frétta­blaðinu, Höskuldur Daði Magnússson blaða­maður og Haraldur Jónasson ljós­myndari frá Morgun­blaðinu, Vilmundur Hansen blaða­maður á Bænda­blaðinu og Jóhann K. Jóhannsson frétta­maður á Stöð 2 þáðu flugfarið austur á Vopna­fjörð. Auk þeirra voru viðstaddir frétta­menn Ríkis­útvarpsins og Austur­fréttar, en hvorir tveggja komu á eigin vegum á fundinn. Blaðamanna­fundurinn var skipulagður af almanna­tengsla­fyrirtækinu KOM og sagði Óli Kr. Ármannsson, almanna­tengill þar, að boð á blaðamanna­fundinn hafi takmarkast af umfangi viðburðarins. Öllum stærstu fjömiðlum hafi verið boðið. Þegar bent var á að á Bænda­blaðinu starfi þrír blaðamenn auk ritstjóra, sagði Óli að vegna forfalla hefði blaða­manni Bænda­blaðsins boðist flugið.

Stundin fékk ekki tilkynningu um blaðamannafundinn

Stundinni barst ekki tilkynning um blaðamanna­fundinn og fékk ekki boð um að þiggja flug á Vopna­fjörð á fundinn. Stundin hefur fjallað ítrekað og ítarlega um jarðakaup Ratcliffe og viðskipta­félaga hans en eins og þekkt er hefur hann keypt upp tugi jarða á Norð­austurlandi síðustu ár, einkum í Vopna­firði og Þistil­firði. Hafa þau kaup vakið áhyggjur og umræðu, en frumvarp mun nú vera í vinnslu þar sem skilyrði fyrir jarða­kaupum verða þrengd.

Stundin hlaut meðal annars verðlaun Blaðamanna­félags Íslands í fyrra vegna rannsóknar­blaða­mennsku  fyrir umfjöllun um uppkaup auðmanna á íslenskum jörðum.

Fundurinn til að bregðast við neikvæðri umfjöllun

Umfjöllun Morg­un­blaðs­insFjallað var um áform James Ratcliffe um verndun laxa­stofna.

Umfjöllunar­efni fundarins var að sögn uppbygging og verndun á villtum laxi á Íslandi. Ratcliffe sjálfur var ekki viðstaddur en stjórnar­menn í félögum hans sem eiga umræddar jarðir voru það. Í frétt Ríkis­útvarpsins er haft eftir Gísla Ásgeirs­syni, framkvæmda­stjóra Veiðfélagsins Strengs sem Ratcliffe á 87 prósenta hlut í, að neikvæð umfjöllun hafi dregið úr áhuga Ratcliffe og viðskipta­félaga á fjár­festingum. Spurður hvort verið væri að bregðast við slíkri neikvæðri umfjöllun með fundinum svaraði Gísli: „Já, meðal annars.“

„Að einhverju leyti stafaði þessi linkind frétta­manna gagnvart viðskipta­mönnum af því að myndast hafði óþarflega mikið „vináttu­samband við umfjöllunar­efnið““

Í rann­sóknar­skýrslu Alþingis um aðdrag­anda og orsakir falls íslensku bankanna 2008 er fjallað um þátt fjölmiðla og niður­staða skýrslunnar er sú að íslenskir fjöl­miðlar hafi brugðist hlutverki sínu í aðdrag­anda hrunsins, þeir hafi ekki sýnt það aðhald sem krefjast megi af þeim. „Að einhverju leyti stafaði þessi linkind frétta­manna gagnvart viðskipta­mönnum af því að myndast hafði óþarflega mikið „vináttu­samband við umfjöllunar­efnið“. Þessi nánu tengsl sköpuðust sumpart með því að viðskipta­fréttamenn tóku þátt í kynningar­ferðum þar sem „alls kyns menn úr viðskipta­lífinu [...] voru með í för og það var hægt að spjalla við þá óformlega í einhverjum kokteilum“,“ segir meðal annars í skýrslunni.

Boðs­ferðir fjölmiðla­manna hafa lengi tíðkast en þótt geta valdið hagsmuna­árekstri hjá blaða­mönnum. Þannig þótti Ríkis­útvarpið brjóta siða­reglur Blaðamanna­félags Íslands árið 2001 þegar frétta­maður ferðaðist á kostnað ísraelska ríkisins til Ísraels til að fjalla um deilu Ísraels og Palestínu. 

Ekki hefur komið fram að fjölmiðla­fólk hafi þegið neinar gjafir eða fríðindi umfram frítt flug, ferð um svæðið og frían hádegis­verð.

Rósa Björk Brynjólfs­dóttir, þingmaður Vinstri grænna og fyrr­verandi frétta­maður, undraðist á Twitter í gærkvöldi að frétta­stofur og frétta­menn hefðu þegið flug austur á land á blaðamanna­fund fulltrúa Ratcliffe. Taldi hún að þeir frétta­menn sem það hefðu gert yrðu að skýra ástæður sínar fyrir því.  

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár