Sameinað fyrirtæki mun eiga 10 prósent alls kvóta

Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækin Vísir og Þorbjörn í Grinda­vík und­ir­búa sam­ein­ingu. Sameinað fyr­ir­tæki yrði það kvóta­mesta á land­inu.

Grindavík
Grinda­vík Um 600 manns vinna hjá fyr­ir­tækj­unum sem hyggja á sam­ein­ingu. Mynd: Einar Páll Svavarsson

Nýtt sam­einað fyr­ir­tæki sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna Vísis hf. og Þor­bjarnar hf. mundi eiga 9,77 pró­sent fisk­veiði­heim­ilda í afla­marks­kerf­inu. Sameinað fyr­ir­tæki yrði þannig það kvóta­mesta á land­inu.

Vinna við sam­ein­ingu fyr­ir­tækj­anna er komin langt á leið, að því er Morg­un­blaðið greinir frá í dag. Fyr­ir­tækin eru bæði í Grinda­vík og um 600 manns vinna sam­tals hjá þeim. „Nei, það er ekki hægt að segja að annar hvor aðil­inn hafi átt frum­kvæði að sam­ein­ing­ar­við­ræðum,“ segir Gunnar Tómasson hjá Þorbirni. „Þetta er hug­mynd sem spratt af sam­tali fólks og svo hefur þetta mál þró­ast stig af stigi. Ég tel allar líkur á að dæmið gangi upp.“

Sameinað félag yrði með sterka stöðu, en til sam­an­burðar má nefna að Brim, sem nú hefur mestar fisk­veiði­heim­ildir íslenskra fyr­ir­tækja, er með 9,43 pró­sent allra heim­ilda. „Bæði fyr­ir­tækin standa ágæt­lega,“ segir Pétur Haf­steinn Pálsson, fram­kvæmda­stjóri Vísis hf. „Sam­ein­ing væri þó hagur beggja, enda gætum við þannig öðl­ast meiri styrk til að nýta tæki­færin og verk­efnin sem eru fram undan í starf­sem­inni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár