Sósíalistar vilja útsvar á fjármagnstekjur

Sanna Magdalena Mörtu­dóttir leggur fram tillögu um að sveitar­félögin fái hlutfall af fjármagns­tekjum einstaklinga. Bendir hún á að margir af þeim auðugustu hafi eingöngu fjármagns­tekjur og greiði því ekkert til að fjármagna þá þjónustu sem sveitar­félög veita.

Sanna Magdalena Mörtudóttir
Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir Borg­ar­full­trúi Sós­í­alista vill að sveit­ar­fé­lögin fái hlut­fall af fjár­magnstekjum. Mynd: Kristinn Magnússon

Sanna Magdalena Mörtu­dóttir, borgarfulltúi Sósíalista­flokks Íslands, mun á morgun flytja tillögu í borgar­stjórn um að útsvar verði lagt á fjármagns­tekjur.

Samkvæmt tillög­unni er þeim borgar­fulltrúum sem sitja fyrir hönd Reykja­víkurborgar í stjórn Sambands íslenskra sveitar­félaga falið að leggja tillöguna fyrir stjórn þess. „Öfugt við launa­tekjur bera fjármagns­tekjur ekkert útsvar og hér er því um gríðar­lega fjármuni að ræða fyrir sveitar­félögin,“ segir í tillög­unni. „Þar sem sveitar­félög geta ekki lagt á umrædda skatta án laga frá Alþingi, er lagt til að tillagan verði tekin fyrir innan Sambandsins.“

Er bent á að sveitar­félögin sinni verkefnum á sviði skólamála, kjara- og starfs­mannamála og umhverfis- og tæknimála, auk þess að veita félags­þjónustu, sinna málefnum sem falla undir lýðræði og mann­réttindi, skipulags- og byggðamál og stjórn­sýslu.

„Tekjur hinna allra auðugustu eru að miklu leyti fjármagns­tekjur og greiða þeir aðilar því ekki sama hlutfall af tekjum sínum til sveitar­félaganna sem þeir búa í, líkt og launa­fólkið,“ segir í tillög­unni. „Hafi einstaklingur einungis fjármagns­tekjur en engar launa­tekjur greiðir viðkomandi ekkert útsvar til viðkomandi sveitar­félags sem hann býr í. Þ.e.a.s. viðkomandi greiðir því ekki í sameiginlegan sjóð borgar eða bæjar líkt og launafólk viðkomandi sveitar­félags. Til að vinna gegn þessu ósamræmi í skatt­lagningu og til að efla tekju­stofna sveitar­félaganna er mikilvægt að leggja útsvar á fjármagns­tekjur. Þannig má styrkja borgar­sjóð og þar með borgina svo að hún hafi burði til að sinna öllum þeim verkefnum er koma inn á hennar borð og þannig getur hún veitt sem bestu þjónustuna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár