Heldur að forseti geti lagt þingsályktun í dóm þjóðarinnar

Ólafur Ísleifs­son, þing­maður Mið­flokks­ins, telur að 26. gr. stjórn­ar­skrár­innar taki einnig til þings­á­lykt­unar um ESB-gerðir.

Heldur að forseti geti lagt þingsályktun í dóm þjóðarinnar

„Atbeini for­seta Íslands er nauð­syn­legur þegar kemur að þriðja orku­pakk­anum,“ skrifar Ólafur Ísleifs­son, þing­maður Mið­flokks­ins, í grein í Morg­un­blað­inu í dag. 

Orku­pakk­inn hefur ekki verið afgreiddur á Alþingi, en Ólafur segir ljóst að Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, hljóti að íhuga að vísa mál­inu í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu.

Í 26. gr. stjórn­ar­skrár­innar er mælt fyrir um að ef for­seti synji laga­frum­varpi stað­fest­ingar skuli fara fram þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um frum­varpið. Ólafur heldur því fram að þetta ákvæði geti einnig tekið til þings­á­lykt­unar.

„Málið liggur að stærstum hluta fyrir sem þings­á­lykt­un­ar­til­laga um að til­teknar Evr­ópu­reglu­gerðir fái laga­gildi. Almennar þings­á­lykt­anir koma ekki til kasta for­seta. Hér ræðir um þings­á­lyktun um að taka upp í lands­rétt til­teknar Evr­ópu­reglur. Þegar þannig stendur á er þings­á­lyktun lögð fyrir for­seta,“ skrifar Ólafur.

Ólafur segir því að orku­pakk­inn í heild muni fara um hendur for­seta. „Í fersku minni er að stjórn­ar­skráin geymir í 26. grein ákvæði um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu synji for­seti laga­frum­varpi stað­fest­ingar,“ skrifar Ólafur. „Þings­á­lykt­unin felur í sér sam­þykki Alþingis fyrir að veita til­teknum Evr­ópu­reglum laga­gildi. Nærtækt er að líta þannig á að 26. greinin eigi eins við í þessu til­felli. Samkvæmt því er á valdi for­seta að leggja orku­pakk­ann í dóm þjóð­ar­innar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Þriðji orkupakkinn

Frosti: „Hneyksli“ að ECT-samningurinn hafi ekki verið borinn undir Alþingi
FréttirÞriðji orkupakkinn

Frosti: „Hneyksli“ að ECT-samn­ing­ur­inn hafi ekki verið bor­inn undir Alþingi

Frosti Sig­ur­jóns­son, fyrr­ver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og einn af tals­mönnum Orkunnar okkar, telur það stjórn­ar­skrár­brot að Ísland hafi und­ir­geng­ist skuld­bind­ingar ECT-samn­ings­ins án aðkomu Alþingis. Gunnar Bragi Sveins­son stóð að full­gild­ingu samn­ings­ins í rík­is­stjórn­ar­tíð Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar.
Aðstoðarmaður Sigmundar réttlætir fullgildingu ECT-samningsins: „Stundum er hlutum blandað inn í umræðuna“
FréttirÞriðji orkupakkinn

Aðstoð­ar­maður Sig­mundar rétt­lætir full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins: „Stundum er hlutum blandað inn í umræð­una“

Hinn umdeildi samn­ingur um vernd orku­fjár­fest­inga varð ekki bind­andi fyrir Ísland fyrr en rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar full­gilti hann árið 2015. Ólíkt því sem lagt var upp með við und­ir­ritun samn­ings­ins 20 árum áður var full­gild­ingin ekki borin undir Alþingi. Aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs gefur lítið fyrir frétta­flutn­ing af mál­inu, en önnur Evr­ópu­ríki töldu ástæðu til að sam­þykkja sér­staka yfir­lýs­ingu um for­ræði yfir sæstrengjum og olíu­leiðslum. Með und­ir­ritun Gunnars Braga Sveins­sonar og Ólafs Ragnars Gríms­sonar árið 2015 skuld­bundu íslensk stjórn­völd sig til að fram­fylgja samn­ingnum í hví­vetna.
Stjórn Sigmundar fullgilti umdeildan samning um vernd orkufjárfestinga
FréttirÞriðji orkupakkinn

Stjórn Sig­mundar full­gilti umdeildan samn­ing um vernd orku­fjár­fest­inga

Með full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins hafa íslensk stjórn­völd skuld­bundið sig til að liðka fyrir frjálsum við­skiptum með orku­auð­lindir og að beita sér fyrir sam­keppni, mark­aðsvæð­ingu og sam­vinnu á sviði orku­flutn­inga. Reynt gæti á ákvæði samn­ings­ins ef upp koma deilur um lagn­ingu sæstrengs, en fjár­festar hafa meðal ann­ars notað samn­ing­inn sem vopn gegn stjórn­valds­að­gerðum sem er ætlað að halda niðri raf­orku­verði til almenn­ings.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár