Ísland gagnrýni ekki aftökur á Filippseyjum með ályktun: „Eina kristna landið í Asíu“

Birgir Þór­ar­ins­son, þing­maður Mið­flokks­ins, segir við­skipta­hags­munum stefnt í hættu með gagn­rýni á mann­rétt­inda­brot í Fil­ipps­eyjum. Rodrigo Duterte for­seti sé „mjög vin­sæll í heima­land­inu“.

Ísland gagnrýni ekki aftökur á Filippseyjum með ályktun: „Eina kristna landið í Asíu“

„Það yrði óneit­an­lega skaði að fyrir Ísland ef Fil­ipps­eyjar, eina kristna landið í Asíu, myndu slíta stjórn­mála­sam­bandi við okkur.“ Þetta skrifar Birgir Þór­ar­ins­son, þing­maður Mið­flokks­ins, í grein í Morg­un­blað­inu í dag.

Tilefni skrifa hans eru hót­anir Rodrigo Duterte, for­seta Fil­ipps­eyja, um að slíta stjórn­mála­sam­bandi við Ísland vegna álykt­unar í mann­réttinda­ráði Sam­ein­uðu þjóð­anna. Ráðið lýsti form­lega yfir áhyggjum af ástand­inu á Fil­ipps­eyjum, hvatti stjórn­völd í land­inu til að stöðva aftökur á fólki án dóms og laga og draga þá til ábyrgðar sem hafa staðið fyrir slíku. Ísland hafði for­ystu um málið.

Birgir hefur gagn­rýnt fram­göngu Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar utan­rík­is­ráð­herra í mál­efnum Fil­ipps­eyja. „Það er ekki gott fyrir litla þjóð eins og Ísland á alþjóða­vett­vangi,“ skrifar Birgir. „Óvissa myndi ríkja um ferðir Íslend­inga til Fil­ipps­eyja og áhrif á sam­fé­lag Fil­ippsey­inga á Íslandi. Auk þess væri marg­vís­legum við­skipta­hags­munum stefnt í hættu svo sem á sviði jarð­hita en á Fil­ipps­eyjum eru ein mestu jarð­hita­svæði heims.“

Segir Birgir fram­göngu Íslands byggja á veikum grunni og að gagn­rýni ætti frekar að koma áleiðis í einka­sam­tölum. „Ráðamenn á Fil­ipps­eyjum hafa brugð­ist harka­lega við þess­ari fram­göngu Íslands eins og áður segir og hefur nýsam­þykkt lög á Íslandi um þung­un­ar­rof meðal ann­ars borið á góma í þeirri umræðu og hefur þing­for­seti Fil­ipps­eyja sagt nýju þung­un­ar­rofslögin vera mann­rétt­inda­brot.“

Birgir hefur sjálfur sagt þung­un­ar­rofslögin stang­ast á við kristin gildi. Þá segir hann upp­lýs­ingar um mann­rétt­inda­brot á Fil­ipps­eyjum vera mis­vísandi. „Auk þess gat ég þess að for­seti Fil­ipps­eyja væri mjög vin­sæll í heima­land­inu, en 80% lands­manna styðja hann í bar­átt­unni gegn glæpa­gengjum fíkni­efn­anna þar í landi.“

Samtökin Human Rights Watch hafa gagn­rýnt Duterte fyrir fang­elsun póli­tískra and­stæð­inga, aðför að blaða­mönnum og aftökur án dóms og laga í tengslum við fíkni­efna­stríðið. Hafa tugir þús­unda lát­ist í aðgerðum lög­reglu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár