Dagsektarúrskurður bendi til „vanvirðandi háttsemi“ móður gegn barni

Dóms­mála­ráðu­neytið telur að sýslu­maður hafi farið rétt að þegar hann sendi barna­vernd­ar­nefnd til­kynn­ingu um ofbeldi eða van­virð­andi með­ferð móður á barni vegna dag­sekt­ar­úr­skurðar.

Dagsektarúrskurður bendi til „vanvirðandi háttsemi“ móður gegn barni
Telja sýslu­mann hafa farið rétt að Dóms­mála­ráðu­neytið telur ekk­ert athuga­vert við vinnu­brögð sýslu­manns. Mynd: Davíð Þór

Dóms­mála­ráðu­neytið telur að sýslu­maður hafi farið rétt að þegar hann sendi barna­vernd­ar­nefnd til­kynn­ingu í fyrra um að grunur væri um ofbeldi eða van­virð­andi með­ferð móður á barni á þeim grund­velli að kveð­inn hafði verið upp dag­sekt­ar­úr­skurður vegna umgengni­stálm­unar. Áður hafði ráðu­neytið stað­fest úrskurð sýslu­manns þar sem sama kona var sögð hafa brotið gegn barni sínu með því að greina frá og kæra meint ofbeldi föður þess til lög­reglu án þess að það leiddi til ákæru eða dóms.

Sýslumenn telja tálmun ofbeldi

Eins og Stundin greindi frá í fyrra skil­greina Sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og Sýslu­mað­ur­inn á Suð­ur­landi umgengni­stálm­anir sem ofbeldi gegn börnum og senda gjarnan barna­vernd­ar­nefndum til­kynn­ingar um ofbeldi eftir upp­kvaðn­ingu dag­sekt­ar­úr­skurða. Hrefna Frið­riks­dóttir, pró­fessor í fjöl­skyldu­rétti við Háskóla Íslands og einn af höf­undum frum­varps sem lá til grund­vallar end­ur­skoðun á barna­lögum árið 2012, sagði í sam­tali við Stundina að hún væri ósam­mála túlkun …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Barnaverndarmál

Barnaníðskæru dagaði uppi fyrir „mjög bagaleg mistök“
FréttirBarnaverndarmál

Barn­a­níð­skæru dag­aði uppi fyrir „mjög baga­leg mis­tök“

Alvarleg mis­tök lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og óvenju­leg afskipti þáver­andi for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu af Hafn­ar­fjarð­ar­mál­inu urðu til þess að kæra barna­vernd­ar­nefndar vegna meintra kyn­ferð­is­brota fékk ekki lög­mæta með­ferð og lá óhreyfð í meira en tvö ár. „Lögregla beið eftir gögnum frá barna­vernd sem aldrei komu,“ segir í bréfi sem lög­regla sendi rík­is­sak­sókn­ara vegna máls­ins.
Barn talið óhult hjá föður þrátt fyrir sögu um barnaníð
FréttirBarnaverndarmál

Barn talið óhult hjá föður þrátt fyrir sögu um barn­a­níð

Rannsókn á meintum kyn­ferð­is­brotum föður gegn barni var felld niður án lækn­is­skoð­unar og Barna­hússvið­tals, en í kjöl­farið komu fram yfir­lýs­ingar frá konum sem segja mann­inn hafa mis­notað þær í æsku. Dóm­stólar telja að „það þjóni hags­munum barns­ins að það njóti meiri og sam­felld­ari umgengni við föður“ og hafa úrskurðað um umgengni án eft­ir­lits.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár