Ekki mótuð stefna vegna loftslagsflóttamanna

Íslensk stjórn­völd hafa ekki mótað stefnu eða ráðist í greiningar­vinnu vegna loftslags­flóttamanna, enda er hugtakið enn í mótun á alþjóða­vettvangi. „Ísland skipar sér iðulega í ört stækkandi hóp ríkja sem telja að neikvæð umhverfis­áhrif hafi aukið og muni auka enn frekar á flóttamanna­vandann,“ segir aðstoðar­maður umhverfis­ráðherra.

Bitnar verst á þeim fátæku
Bitnar verst á þeim fátæku Íbúðar lág­lendra strand­svæða eins og Bangla­dess eru sér­stak­lega ber­skjald­aðir fyrir lofts­lags­vánni. Mynd: Shutterstock

Íslensk stjórn­völd hafa ekki ráðist í sérstaka stefnu­mótun eða greiningar­vinnu vegna hugsanlegrar móttöku loftslags­flóttamanna. Hins vegar hafa stjórn­völd tekið skýra afstöðu í mála­flokknum á alþjóða­vettvangi og varað við því að loftslags­breytingar kyndi undir flóttamanna­vandanum. Þetta kemur fram í svari umhverfis- og auðlinda­ráðuneytisins við fyrir­spurn Stundarinnar um málið. 

Ekki verið mótuð stefnaEkki hefur verið ráð­ist í stefnu­mótun, áætl­un­ar­gerð eða grein­ing­ar­vinnu sem lýtur sér­stak­lega að mót­töku lofts­lags­flótta­manna á Íslandi.

Tugir milljóna hafa þurft að flýja heimkynni sín vegna náttúru­hamfara á undan­förnum árum, að miklu leyti vegna hamfara sem má rekja til breytinga á loftslagi jarðar.

Flóttamanna­stofnun Sameinuðu þjóðanna spáir því að áður en öldin er hálfnuð muni 250 milljónir manna hafa lent á vergangi vegna hamfara­hlýnunar. Þetta eru hundrað sinnum fleiri en sóttu formlega um alþjóð­lega vernd í Evrópu­sambands­ríkjum árin 2015 og 2016 þegar fjölgun flótta­fólks var hvað mest. 

…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár