Fengu fjölskyldumálverk í hendurnar eftir umfjöllun Stundarinnar

Skoskar mæðgur sem komu til Íslands í byrjun árs í leit að svörum við spurningum sem leitað hafa á fjöl­skyldu þeirra eru þakklátar Íslendingi sem sendi þeim málverk sem var í eigu ömmu þeirra og langömmu á Íslandi. Gunnar Eggert Guðmundsson taldi réttast að fjöl­skyldan fengi málverkið þar sem þau fengu lítið sem ekkert úr búi Áslaugar.

„Þetta er yndis­legur vináttu­vottur frá manni sem hefur aldrei hitt okkur og vissi ekki einu sinni að við værum til fyrr en fyrir örfáum mánuðum síðan,“ segir hin skoska Astraea Jill Robertson, Jill, sem fékk á dögunum óvænt símtal frá ókunnugum manni í Noregi sem hafði lesið um harm­þrungna fjölskyldu­sögu hennar í Stundinni – sögu móður hennar og ömmu þeirra Catherine Öldu Laurens Weatherstone, Cathie, og Áslaugar Sívertsen. Áslaug eignaðist Cathie á laun úti í Skotlandi árið 1929 og kom henni í fóstur hjá vinafólki. Þær héldu hins vegar alla tíð nánu sambandi, þrátt fyrir að sann­leikurinn um tengsl þeirra væri eitthvað sem enginn hafði hátt um á meðan þær voru báðar á lífi. Afkomendur Cathie hafa furðað sig á því að Áslaug hafi ekki getið einka­dóttur sinnar í erfðaskrá.

Málverk í eigu fjöl­skyld­unnarMæðgurnar Amy og Jill við mál­verkið sem Gunnar Eggert fékk gef­ins frá …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig peninga­slóð stjórn­enda Kaupþings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eigin­kvenna fyrr­verandi stjórn­enda Kaupþings­banka á félögum á aflands­svæðinu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi notast við slík félög í viðskiptum sínum eftir efnahags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sigurðsson, fyrr­verandi forstjóri Kaupþings, og eiginkonu hans tengdust til dæmis félögum í Panama­skjölunum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­félagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengdust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lögmanni fyrir stórfelld skattsvik og peninga­þvætti

Sigurður Gísli Björnsson, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­útflytjandi landsins, er sakaður um að hafa stungið rúmlega milljarði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknninga og aflandsfélög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stófelld brot á skatta­lögum, bókhalds­lögum og peninga­þvætti. Íslenskur lögmaður sem einnig er ákærður segist saklaus.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár