Miðflokksmenn töluðu um orkupakkann fram á morgun

12 klukku­tíma umræðum á Alþingi var slitið kl. 5:42 í morgun. Málið er aftur á dag­skrá í dag.

Miðflokksmenn töluðu um orkupakkann fram á morgun

Umræður um þriðja orku­pakk­ann stóðu yfir í tólf klukku­tíma á Alþingi í gær. Þingmenn Mið­flokks­ins töl­uðu einir frá klukkan 22:32 þar til Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, sleit umræðum klukkan 5:42 í morgun.

Klukkan 3:23 var rætt um fund­ar­stjórn for­seta og spurði Bergþór Ólason, þing­maður Mið­flokks­ins, hvað til stæði að þing­fundur héldi lengi áfram, þar sem þing­menn þyrftu sumir að mæta á nefnd­ar­fundi um morg­un­inn. Sagðist hann þó ekki veigra sér við að halda umræð­unum áfram.

„Nú hefur komið í ljós að hátt­virtir þing­menn hafa mikla þörf fyrir að tjá sig,“ sagði Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis. „Annríki fer vax­andi á þing­inu og ekki mjög margir þingdagar eftir. Og þá er að sjálf­sögðu eðli­legt að bregð­ast við þess­ari þörf þing­manna með því að lengja þing­fund. Og ég geri ráð fyrir að hátt­virtir þing­menn Mið­flokks­ins sem hafa mikla þörf fyrir að ræða þetta mál, og ræða saman um það og fara í andsvör við sig sjálfa, þeir fagni því að það sé búið til rými fyrir þá til að flytja sínar ræður. Og þar með er þetta allt í góðu lagi og okkur ekki að van­bún­aði að nýta bjarta vor­nótt­ina til þess að eiga þessar upp­byggi­legu sam­ræður.“

Þing­fundur hefst aftur kl. 13:30 í dag og er þriðji orku­pakk­inn aftur til umræðu, auk 18 ann­arra mála. Fimm þing­menn Mið­flokks­ins eru þegar á mæl­enda­skrá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Þriðji orkupakkinn

Frosti: „Hneyksli“ að ECT-samningurinn hafi ekki verið borinn undir Alþingi
FréttirÞriðji orkupakkinn

Frosti: „Hneyksli“ að ECT-samn­ing­ur­inn hafi ekki verið bor­inn undir Alþingi

Frosti Sig­ur­jóns­son, fyrr­ver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og einn af tals­mönnum Orkunnar okkar, telur það stjórn­ar­skrár­brot að Ísland hafi und­ir­geng­ist skuld­bind­ingar ECT-samn­ings­ins án aðkomu Alþingis. Gunnar Bragi Sveins­son stóð að full­gild­ingu samn­ings­ins í rík­is­stjórn­ar­tíð Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar.
Aðstoðarmaður Sigmundar réttlætir fullgildingu ECT-samningsins: „Stundum er hlutum blandað inn í umræðuna“
FréttirÞriðji orkupakkinn

Aðstoð­ar­maður Sig­mundar rétt­lætir full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins: „Stundum er hlutum blandað inn í umræð­una“

Hinn umdeildi samn­ingur um vernd orku­fjár­fest­inga varð ekki bind­andi fyrir Ísland fyrr en rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar full­gilti hann árið 2015. Ólíkt því sem lagt var upp með við und­ir­ritun samn­ings­ins 20 árum áður var full­gild­ingin ekki borin undir Alþingi. Aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs gefur lítið fyrir frétta­flutn­ing af mál­inu, en önnur Evr­ópu­ríki töldu ástæðu til að sam­þykkja sér­staka yfir­lýs­ingu um for­ræði yfir sæstrengjum og olíu­leiðslum. Með und­ir­ritun Gunnars Braga Sveins­sonar og Ólafs Ragnars Gríms­sonar árið 2015 skuld­bundu íslensk stjórn­völd sig til að fram­fylgja samn­ingnum í hví­vetna.
Stjórn Sigmundar fullgilti umdeildan samning um vernd orkufjárfestinga
FréttirÞriðji orkupakkinn

Stjórn Sig­mundar full­gilti umdeildan samn­ing um vernd orku­fjár­fest­inga

Með full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins hafa íslensk stjórn­völd skuld­bundið sig til að liðka fyrir frjálsum við­skiptum með orku­auð­lindir og að beita sér fyrir sam­keppni, mark­aðsvæð­ingu og sam­vinnu á sviði orku­flutn­inga. Reynt gæti á ákvæði samn­ings­ins ef upp koma deilur um lagn­ingu sæstrengs, en fjár­festar hafa meðal ann­ars notað samn­ing­inn sem vopn gegn stjórn­valds­að­gerðum sem er ætlað að halda niðri raf­orku­verði til almenn­ings.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár