Við misstum tvo kvöldið sem föðurbróðir okkar myrti föður okkar

Ragnar Lýðsson var fæddur og upp­al­inn að Gýgj­ar­hóli í Bisk­ups­tungum, á staðnum þar sem hann lést eftir árás bróður síns. Börn Ragnars lýsa því hvernig þeim varð smám saman ljóst að föð­ur­bróðir þeirra hefði ráð­ist að föður þeirra með svo hrotta­legum hætti, hvernig hvert áfallið tók við af öðru eftir því sem rann­sókn máls­ins mið­aði fram. „Þetta voru svo mikil svik.“ Þau segja frá því hvernig griða­staður þeirra varð skyndi­lega vett­vangur martraðar, áhrifum þess á fjöl­skyld­una og bar­átt­unni fyrir rétt­læti.

Við misstum tvo kvöldið sem föðurbróðir okkar myrti föður okkar

Í hvert sinn sem hann sneri aftur á gamla bæinn sinn kom sér­stakt blik í augu hans. Það leyndi sér ekki, að í sveit­inni var hann heima. Á bænum Gýgj­ar­hóli í Bisk­ups­tungum var Ragnar Lýðsson fæddur og upp­al­inn, þar bjó eldri bróðir hans enn og húsið stóð alltaf opið fjöl­skyld­unni. Allt í kring voru vinir og ætt­ingjar. Þrátt fyrir að Ragnar kynni alltaf vel við sig í sveit­inni, hefði ágætt lag á skepnum, væri hesta­maður mik­ill og gengi í öll verk, átti ekki fyrir honum að liggja að taka við búinu á sínum tíma. Það gerðu eldri bræður hans, sem ráku þar blóm­legt félagsbú um tíma. Sjálfur var hann leit­andi, gekk til sjós þar til hann lenti í alvar­legu bílslysi, hóf nám í málm­smíði en færði sig yfir í húsa­smíði, vann sem bústjóri á með­ferð­ar­heim­ili, vann við smíði og upp­setn­ingu, og fann sig að lokum sem stór­verk­taki. Fyr­ir­tækið var í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár