Stærsti eigandi Arnarlax ætlar að greiða 36 milljarða í arð

Lax­eld­is­ris­inn Salmar er stærsti hags­mun­að­il­inn í íslensku lax­eldi. Félagið á nú rúm­lega 63 pró­senta hlut í Arn­ar­laxi. Fyr­ir­tækið hefur sett millj­arða króna í hluta­bréf Arnarlax og veðjar á að félagið skili hagn­aði í fram­tíð­inni.

Stærsti eigandi Arnarlax ætlar að greiða 36 milljarða í arð
Ævin­týra­legar arð­greiðslur Hlut­hafar stærsta eig­anda Arnarlax, Salmar, greiða út 36 millj­arða í arð fyrir 2018. Kjartan Ólafsson er stjórn­ar­for­maður Arnarlax sem ákvað að selja ekki hluta­bréf sín til Salmar heldur veðjar á áfram­hald­andi hækkun hluta­bréf­anna.

Stærsti hlut­hafi íslenska lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Arnalax á Bíldudal, norski lax­eld­is­ris­inn Salmar, hefur ákveðið að greiða hlut­höfum félags­ins arð upp á rúm­lega 2,6 millj­arða norskra króna eða rúm­lega 36 millj­arða íslenskra króna. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá félag­inu til norsku kaup­hall­ar­innar.

Salmar er skráð á hluta­bréfa­markað í Noregi. Arð­greiðslan er háð því að hún verði sam­þykkti á aðal­fundi fyr­ir­tæk­is­ins en það er stjórn félags­ins sem leggur hana til eftir stjórn­ar­fund sem hald­inn var í gær. Arð­greiðslan er upp á 23 norskar krónur á hlut, eða rúm­lega 295 íslenskar krónur. 

Arnarlax er stærsta lax­eld­is­fyr­ir­tæki á Íslandi með lax­eld­isk­vóta upp á 22 þús­und tonn. Það eru í reynd þessi verð­mæti sem Salmar fal­ast eftir þar sem sam­bæri­legur lax­eld­isk­vóti í Noregi myndi kosta fyr­ir­tækið um 36 millj­arða íslenskra króna ef fyr­ir­tækið ætl­aði að kaupa slíkt fram­leiðslu­leyfi. Í Noregi myndu þessir fjár­munir renna til norska rík­is­ins en á Íslandi þá kosta lax­eld­is­leyfin ekki neitt þannig að íslenska ríkið fær enga fjár­muni fyrir leyfin. Fjár­fest­arnir í lax­eld­is­fyr­ir­tækj­unum geta hins vegar selt hluta­bréf sín í fyr­ir­tækj­unum fyrir háar fjár­hæðir þar sem lax­eld­isk­vóti gengur kaupum og sölum fyrir hátt verð í öðrum löndum eins og Noregi. 

Arð­greiðsla frá Salmar til hlut­hafa sinna byggir hins vegar ekki á starf­semi Arnarlax. Ástæðan er sú að Arnarlax er ennþá í upp­bygg­ing­arfasa og hefur ekki ennþá skilað hagn­aði jafn­vel þó hluta­bréf fyr­ir­tæk­is­ins gangi kaupum og sölum fyrir millj­arða króna vegna þeirra vænt­inga sem gerðar eru til fram­tíðar fyr­ir­tæk­is­ins. 

Aðrir hluthafar seldu ekki

Salmar er orð­inn meiri­hluta­eig­andi í Arn­ar­laxi eftir að hafa keypt upp hluta­bréf íslensku fjár­fest­anna Trygg­inga­mið­stöð­ar­innar og Fiski­sunds fyrr á árinu en bæði félögin inn­leystu mik­inn hagnað af hluta­bréfa­við­skiptum sínum í Arn­ar­laxi. Salmar átti fyrir rúm­lega 49 pró­senta hlut í Arn­ar­laxi og bætti við sig 13 pró­senta hlut frá þessum tveimur íslensku félögum. 

Í annarri til­kynn­ingu frá Salmar í Noregi kemur fram að félagið eigi nú rúm­lega 63 pró­senta hlut í Arn­ar­laxi í gegnum norskt móð­ur­fé­lag þess, Salmar AS. Í þeirri til­kynn­ingu kemur fram að frestur annnarra hlut­hafa Arnalax að sam­þykkja yfir­tökutil­boð Salmar í hluta­bréf þeirra í Arn­ar­laxi hafi runnið út í gær. 

Miðað við til­kynn­ing­una hefur félagið ekki bætt veru­lega við sig í Arn­ar­laxi eftir kaupin á bréfum Trygg­inga­mið­stöðv­ar­innar og Fiski­sunds og hafa flestir eft­ir­stand­andi hlut­hafar Arnarlax, meðal ann­ars norski millj­arða­mær­ing­ur­inn Petter Storda­len og stjórn­ar­for­mað­ur­inn Kjartan Ólafsson, ekki selt hluta­bréf sín í Arn­ar­laxi. 

„Allir sem hafa verið með hingað til hafa í raun komið mjög vel út úr því“

Stjórnarformaðurinn græðir að tjaldabaki

Kjartan Ólafsson hefur hins vegar selt hluta­bréf í Arn­ar­laxi áður og hagn­ast vel á því. Eins og Stundin frá í febr­úar seldi Kjartan hluta­bréf í Arn­ar­laxi fyrir tæp­lega 340 millj­ónir króna árið 2017.  Þetta gerði Kjartan í gegnum eign­ar­halds­fé­lagið sitt, Gyðu ehf.,  og var bók­færður hagn­aður Gyðu ehf. þetta ár rúm­lega 204 millj­ónir króna. Þetta sama ár greiddi móð­ur­fé­lag Gyðu, Berg fjár­fest­ing, út 125 millj­óna króna arð til Kjartans og eig­in­konu hans og ráð­gerði að greiða út 50 millj­óna króna arð í fyrra. Um þetta segir í árs­reikn­ingi Gyðu fyrir árið 2017: „Félagið er eign­ar­halds­fé­lag utan um hluta­bréfa­eign í Arnarlax A/S. Á árinu seldi félagið hluta af eign sinni í félag­inu.“

Kjartan vildi ekki tjá sig um við­skiptin við Stundina: . „Ég vil ekki tjá mig í fjöl­miðlum um per­sónu­leg við­skipti fjöl­skyld­unnar.“

Hann sagði hins vegar, almennt séð, að verð­mætin í íslensku lax­eldi væru orðin umtals­verð. „Ég veit að þetta eru orðin umtals­verð verð­mæti. Allir sem hafa verið með hingað til hafa í raun komið mjög vel út úr því. Og ég gæti hoppað út núna því það liggur fyrir til­boð í hluta­bréfin en ég kýs að gera það ekki,“ sagði Kjartan sem heldur eftir rúm­lega 2 pró­senta hlut í Arn­ar­laxi eftir yfir­töku Salmar á meiri­hluta hluta­bréfa í lax­eld­is­fyr­ir­tæk­inu. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár