Hliðstæðar sögur ævintýramannsins Skúla í OZ og Skúla í WOW

WOW air er ekki fyrsta áber­andi fyr­ir­tækið sem Skúli Mogensen stýrir sem fer á hlið­ina með látum. Um síð­ustu alda­mót var hann fram­kvæmda­stjóri og eig­andi hátækni­fyr­ir­tæk­is­ins OZ sem vann þró­un­ar­vinnu með far­síma sem Skúli taldi vera á heims­mæli­kvarða. Nú ætlar Skúli að stofna nýtt flug­fé­lag.

Hliðstæðar sögur ævintýramannsins Skúla í OZ og Skúla í WOW
Hliðstæð „ævin­týri“ „Ævin­týrin“ um OZ og WOW-air, eins og Skúli Mogensen kallar þau, eru að mörgu leyti lík en í báðum til­fellum var heim­ur­inn undir hjá Skúla.(Samsett mynd af Skúla Mogensen for­stjóra OZ og Skúla Mogensen for­stjóra WOW air). Mynd: Samsett / MBL / WOW air

„Ef litið er um öxl má segja að helsti galli en jafn­framt kostur OZ var hversu stór­huga við vorum, við ætl­uðum okkur alla tíð að búa til og mark­aðs­setja tækni­vörur fyrir almenn­ing á heims­vísu,“ sagði Skúli Mogensen, þáver­andi fram­kvæmda­stjóri hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­is­ins OZ, eftir að Lands­banki Íslands hafði yfir­tekið fyr­ir­tækið um vorið 2003 og sett eign­irnar inn í nýstofnað fyr­ir­tæki í Kanada, Lands­banki Holdings Canada Inc. 

Skúli hefur verið dag­legt umfjöll­un­ar­efni í íslenskum fjöl­miðlum síð­ustu vik­urnar

vegna gjald­þrots flug­fé­lags­ins WOW air sem hann stofn­aði árið 2011. Áður en Skúli stofn­aði WOW air var hann hins vegar þekkt­astur fyrir að stýra OZ, sem var áber­andi spútnik­fyr­ir­tæki á Íslandi á síð­asta ára­tug 20. aldar.  Í báðum til­fellum var Skúli áber­andi sem and­lit við­kom­andi fyr­ir­tækja og var honum hampað sem mark­aðs­manni fyrir það hvernig hann stýrði og kynnti fyr­ir­tækin út á við og tók við …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fall WOW air

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár