Eliza Reid forsetafrú segir sjálfsagt að sýna íslömskum vinum samstöðu

Eliza Reid for­seta­frú heim­sótti mosk­una í Reykja­vík á dög­unum til að flytja ávarp um fram­lag inn­flytj­enda til Íslands.

Eliza Reid forsetafrú segir sjálfsagt að sýna íslömskum vinum samstöðu

Eliza Reid for­seta­frú heim­sótti mosk­una í Reykja­vík 23.mars síð­ast­lið­inn og segir sjálf­sagt að sýna íslömskum vinum okkar sam­stöðu og stuðn­ing.

Eliza fékk boð um að heim­sækja mosk­una í Reykja­vík, nokkrum vikum fyrir hryðju­verka­árás­irnar í Christchurch á Nýja Sjálandi. Að því leyti er tíma­setn­ing heim­sókn­ar­innar til­viljun en í sam­tali við Stundina segir hún það sjálf­sagt að sýna stuðn­ing þegar ódæði á borð við þetta eru unnin. Eliza segir vart þurfa að taka fram að allir sem á móti henni tóku hafi verið afar vin­gjarn­legir og gest­risnir. Hún segir að stöðu sinni sem for­seta­frú vegna reyni hún að verða við óskum þeirra sam­taka og félaga sem bjóða henni að koma og kynn­ast starf­semi þeirra.

Eliza Reid heim­sækir mosk­una í Reykja­vík

Elizu var boðið að heim­sækja mosk­una þegar verið var að kenna börnum íslensku og arab­ísku og þáði hún það með þökkum. Í heim­sókn sinni hlýddi Eliza á ávörp, gekk um hús­ar­kynnin, tók sjálf til máls um fram­lag inn­flytj­enda til íslensks sam­fé­lags og bragð­aði á „góm­sætu myntute og allskyns kræs­ingum.“

„Þá rifj­að­ist upp fyrir mér allur sá hlý­hugur sem ég naut á ferða­lögum ein míns liðs um hin ýmsu lönd þar sem múslimar eru í miklum meiri­hluta,“ segir Eliza.

„Þá rifj­að­ist upp fyrir mér allur sá hlý­hugur sem ég naut á ferða­lögum ein míns liðs um hin ýmsu lönd þar sem múslimar eru í miklum meiri­hluta.“

Eliza segir kyn­þátta­hatur og for­dóma óþol­andi í sam­fé­lag­inu „Ég trúi því að lang­flestir lands­menn séu umburð­ar­lyndir, skiln­ings­ríkir og brjóst­góðir. En eins og ann­ars staðar má finna lít­inn og háværan minni­hluta sem deilir ekki þeim sjón­ar­miðum,“ segir Eliza.

Eliza telur tæki­færi til lær­dóms þegar fólk af ólíkum upp­runa, ólíkri trú og ólíkum siðum skipt­ist á skoð­unum. Með því að eiga í sam­tali telur hún að við getum unnið bug á ótta og tor­tryggni. „Antoine de Saint-Exupéry, sem skrif­aði ævin­týrið um Litla prins­inn, sagði eitt­hvað á þá leið að þú sért ólík mér en það að kynn­ast þér geri mig ekki að minni mann­eskju heldur meiri. Ég vil hafa þetta að leið­ar­ljósi,“ segir Eliza.

„Ég trúi því að lang­flestir lands­menn séu umburð­ar­lyndir, skiln­ings­ríkir og brjóst­góðir. En eins og ann­ars staðar má finna lít­inn og háværan minni­hluta sem deilir ekki þeim sjón­ar­miðum.“
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár