Katrín varar við tortryggni gagnvart evrópsku samstarfi og aðild Íslands að MDE

„Við eigum ekki að hleypa þess­ari umræðu í það hvað okkur finnst um evr­ópskt sam­starf eða erlendar skamm­staf­anir almennt,“ sagði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra í munn­legri skýrslu á Alþingi. Sam­herjar hennar í rík­is­stjórn hafa kvartað yfir því að með aðild­inni að MDE sé Ísland að „fram­selja túlk­un­ar­vald yfir íslenskum lögum til Evrópu“.

Katrín varar við tortryggni gagnvart evrópsku samstarfi og aðild Íslands að MDE

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra varar við því að umræða um nið­ur­stöðu Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu í Lands­rétt­ar­mál­inu fari að snú­ast um evr­ópskt sam­starf almennt, þjóð­rétt­ar­skuld­bind­ingar og aðild Íslands að mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu og mann­rétt­inda­dóm­stólnum í Strass­borg.  

„Við eigum ekki að hleypa þess­ari umræðu í póli­tískar skot­grafir ef okkur er alvara með því að við viljum tryggja hér frið um rétt­ar­kerfið. Við eigum ekki að hleypa þess­ari umræðu í það hvað okkur finnst um evr­ópskt sam­starf eða erlendar skamm­staf­anir almennt. Þetta hefur bara ekk­ert með það að gera. Þetta hefur með það að gera að við erum aðilar að mann­rétt­inda­dóm­stólnum og höfum verið það ára­tugum saman,“ sagði for­sæt­is­ráð­herra í munn­legri skýrslu sinni um við­brögð stjórn­valda við dómi Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu sem hún flutti á Alþingi á þriðja tím­anum að beiðni stjórn­ar­and­stöð­unnar.

„Við erum aðilar að mann­rétt­inda­dóm­stólnum
og höfum verið það ára­tugum saman“

Nær­tæk­ast er að túlka ummæli Katrínar Jak­obs­dóttur sem gagn­rýni á mál­flutn­ing Sjálf­stæð­is­manna, svo sem Bjarna Bene­dikts­sonar sem hefur kallað eftir umræðu um hvort Íslend­ingar hafi „fram­selt túlk­un­ar­vald yfir íslenskum lögum til Evrópu“.

Sigríður Andersen fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra hefur talað á sama veg. Þegar hún til­kynnti um afsögn sína sagð­ist hún ekki myndu „láta það átölu­laust að dóm­stólar séu not­aðir í póli­tískum til­gangi“ og bætti við: „Ég mun heldur ekki láta það átölu­laust að íslenskir dóm­stólar fram­selji vald til túlk­unar á íslenskum lögum til erlendra dóm­stóla.“

Jón Steinar Gunn­laugs­son, einn helsti hug­mynda­fræð­ingur Sjálf­stæð­is­flokks­ins á sviði lög­fræði og rétt­ar­heim­speki, hefur gengið lengst og kallað dóm Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu „árás á full­veldi Íslands“ og hvatt til þess að allir dóm­arar við Lands­rétt sitji áfram og kveði upp dóma þrátt fyrir nið­ur­stöð­una enda hafi dómar MDE ekki beina rétt­ar­verkan á Íslandi. 

Katrín Jak­obs­dóttir tal­aði með allt öðrum hætti í munn­legri skýrslu sinni í dag. „Hér var á sínum tíma, til fyr­ir­myndar, tekin sú ákvörðun í breiðri sam­stöðu, að breyta mann­rétt­inda­kafla stjórn­ar­skrár­innar og lög­festa ákvæði sátt­mál­ans,“ sagði hún um mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu.

„Mönnum líður oft ekk­ert vel með
að mál fái alþjóð­lega rýni og geta
þá gripið til alls konar varna“

„Við vitum það hins vegar að í langri sögu Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins hefur svo sann­ar­lega reynt á við­kvæm álita­mál. Mönnum líður oft ekk­ert vel með að mál fái alþjóð­lega rýni og geta þá gripið til alls konar varna því eðli mann­rétt­inda er að þau hafa gildi óháð landa­mærum. En leyfum okkur það, sem lýð­ræð­is­sam­fé­lag, að reifa þessi ólíku sjón­ar­mið með mál­efna­legum hætti af því við vitum að við erum sam­mála um það að mann­rétt­indi hafa vernd þvert á landa­mæri, það er okkar leið­ar­ljós. Það kunna hins vegar að vera uppi ýmis sjón­ar­mið um hvernig nákvæm­lega eigi að túlka þennan dóm og finna bestu lausn­ina á honum, og leyfum okkur að tala um það.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár