Eflist við hvert einasta ferðalag

Helstu auka­verk­anir þess að ferð­ast ein eru meira sjálfs­traust, sjálfs­ör­yggi og aukin ákveðni í dag­legu lífi. Þetta segir ferða­lang­ur­inn Bryndís Alex­and­ers­dóttir. Hún segir fátt jafn­ast á við að kom­ast yfir hindr­anir án þess að treysta á ein­hvern annan en sjálfan sig. Hér gefur Bryndís les­endum sem hafa hug á að ferð­ast einir tíu ráð.

Eflist við hvert einasta ferðalag
Nýtur ein­ver­unnar Bryndísi þótti dálítið erfitt að vera ein í fyrstu sóló utan­lands­ferð­inni sinni. Hún lærði hins vegar fljótt að njóta ein­ver­unnar og lærir eitt­hvað nýtt um sjálfa sig og heim­inn í hverju ferða­lagi. Mynd: Heiða Helgadóttir

Eftir að Bryndís Alex­and­ers­dóttir skildi fyrir fjórum árum tók hún með­vit­aða ákvörðun um að byrja að ferð­ast meira og á nýjan hátt. Ekki svo að skilja að hún væri ekki vön að ferð­ast, hún hafði þvert á móti gert tals­vert mikið af því. „Mig hefur alla tíð þyrst í að skoða nýja staði. Mín leið til að hvíla mig hefur lengi verið að ferð­ast, borða góðan mat og skoða mann­lífið,“ segir hún.

Það nýja í stöð­unni var hins vegar að nú ætl­aði hún að ferð­ast ein og læra að njóta þess. Hún hvorki átti kærasta né hafði áhuga á að eign­ast einn slíkan og allar vin­konur hennar voru of upp­teknar í eigin lífi til að hægt væri að treysta á þær sem reglu­lega sam­ferða­langa. Ef Bryndísi átti að end­ast ævin til að sjá alla þá staði sem hana lang­aði til, þá var lang­best hún færi ein með sjálfri sér. …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár